framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Herra forseti. Hér þarf ekkert mælaborð, talningu er lokið, eins og reyndar í mörgum öðrum málum sem hafa verið nefnd hér fyrr. Þetta varðar kynjahlutföll nemenda á háskólastigi. Það vill svo til að konur eru á milli 70 og 80% nemenda á háskólastigi eftir því til hvaða skóla er litið. Hver er þá tilgangurinn með þessu? Að lækka hlutfall kvenna í háskólanámi? Það kemur ekki alveg fram þótt talað sé um að það eigi að jafna kynjahlutföllin, því að hér fylgir líka að það eigi að greina ástæður kynjahalla og að samhliða verði ráðist í markvisst átak til að miðla upplýsingum til þeirra hópa sem skila sér ekki í háskólanám, ásamt öðrum aðgerðum til að ná til hópanna. Þurfa allir að fara í háskóla, herra forseti? Hafa menn bara brugðist í lífinu, sjálfum sér og öðrum, ef þeir fara ekki í háskóla?
Ég hef efasemdir um þetta mál. Það sem ræður úrslitum um það að ég hallast nær því að vera á móti heldur en að sitja hjá er að hér er verið að eyða 10 millj. kr. í það (Forseti hringir.) að ríkisvaldið skipti sér af því hvernig háskólar velja inn nemendur.