stefna í neytendamálum til ársins 2030.
Herra forseti. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða. Ég tel að neytendaverndin og aðgerðir á sviði hennar séu mjög mikilvægar til þess einmitt að ráðast að því sem ekki hefur fyllilega náðst að kveða niður, þ.e. verðbólgu. Það eru ýmsar aðgerðir, það er heildarendurskoðun í þessari löggjöf en það þarf líka að grípa til aðgerða sem bíta strax. Ég tel t.d. að verðlagseftirlit verði gert gagnsærra þannig að ég skora á þá sem halda þar á málum að taka strax á þeim málum sem við getum gert eitthvað strax í. Síðan vinnum við áfram með þessa áætlun sem hér er til samþykktar og við í Flokki fólksins styðjum heils hugar.