sýslumaður.
Frú forseti. Við erum að nálgast það að afgreiða þetta frumvarp nú að lögum. Ég vil þakka allsherjarnefnd kærlega fyrir góða vinnu í þessu máli. Þetta er í mínum huga þýðingarmikið einföldunarmál, þýðingarmikið hagræðingarmál. Þetta er byggðajöfnunarmál því að við erum að tryggja hér þjónustu, jafna og hina sömu, hringinn í kringum landið og höfum núna fest breytingartillögu inn í frumvarpið sem tryggir það að 65% hlutfall starfa hjá sýslumanni verði í byggðum landsins. Mér fannst mikilvægt að verða við þessu og ég þakka þingmanninum fyrir góð sjónarmið þar um í umræðunum sem urðu til þess að þetta varð niðurstaðan. Ég er mjög ánægð með að við séum að afgreiða þetta frumvarp og fækka ríkisstofnunum, við erum að fækka þeim um 5% með þessu, og þetta sýnir fram á það að þegar við nálgumst málin af ábyrgð og vinnum þau saman og vinnum þau vel þá getum við gert þetta.