157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

sýslumaður.

111. mál
[17:49]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þingflokkur Framsóknar mun vera á rauðu þegar kemur að atkvæðagreiðslu í þessu máli. Ég held að öllum sem eru í þessum þingsal sé afstaða okkar ljós þegar kemur að þessu máli. Markmið frumvarpsins — það hafa ekki verið færð næg rök fyrir því hvernig á að ná þeim og með hvaða hætti. Þegar kemur að þjónustu á landsbyggðinni höfum við áhyggjur af því að hér sé verið að taka út störf sem skipta miklu máli fyrir landsbyggðina, sérfræðistörf. Þar af leiðandi mun þetta hafa áhrif líka á landsbyggðinni þannig að við munum vera á rauðu þegar kemur að þessu máli.