157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

sýslumaður.

111. mál
[17:50]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við í þingflokki Sjálfstæðisflokksins erum að sjálfsögðu hlynnt sameiningu stofnana og hagræðingu í ríkisrekstri. Við getum hins vegar ekki stutt þetta mál þar sem ekki hefur verið tekið tillit til gildra sjónarmiða okkar og annarra sem höfum goldið varhuga við því að yfirmaður hins nýstofnaða embættis, sýslumaðurinn sjálfur, hafi ekki faglega menntun til að sinna hlutverki sínu. Þá er ég að tala um að horfið sé frá þeirri skyldu að sýslumaðurinn hafi menntun í lögfræði. Í annan stað eru það byggðasjónarmiðin sem við ásamt fleirum höfum verulegar áhyggjur af. Hv. þm. Jón Gunnarsson lagði fram breytingartillögur sem miða að því að festa starfsstöðvar embættanna og höfuðstöðvar vítt og breitt um landið. Meiri hlutinn var hins vegar ekki sammála því og hefur farið þá leið að gera kröfu um að 63% starfanna verði á landsbyggðinni eftir einhvers konar nýrri skilgreiningu sem er allt önnur en liggur fyrir í borgarstefnunni þar sem við höfum miðað við Hvítárnar tvær. Við óttumst að þessi störf muni festast hér á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga.