sýslumaður.
Herra forseti. Frumvarp þessa efnis kom fram á 156. löggjafarþingi og var afgreitt úr hv. allsherjar- og menntamálanefnd en náði ekki fram að ganga á því þingi og var lagt fram aftur núna á 157. löggjafarþingi. Við meðferð málsins fyrir hv. allsherjar- og menntamálanefnd hefur verið fjallað ítarlega um áhrif á byggðasjónarmið og staðsetningu starfsstöðva sýslumanns. Í frumvarpinu eru ýmsar hindranir fyrir því að sú sviðsmynd verði að veruleika, að störfum utan höfuðborgarsvæðisins fækki og þjónusta í og við heimabyggð minnki, svo og er komið til móts við þær áhyggjur að forræði og yfirstjórn verkefna séu ekki lengur í heimabyggð. Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur fjallað ítarlega um þessi sjónarmið og fram kom breytingartillaga frá nefndinni í 3. umræðu þar sem núverandi dreifing starfa er tryggð í lögunum, þ.e. að a.m.k. 65% starfa embættisins verði á landsbyggðinni, utan höfuðborgarsvæðisins. Þá var gerð sú breytingartillaga á frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra að ráðherra leggi mat á árangur af sameiningu sýslumannsembætta í eitt. Niðurstaða þess mats verður lögð fyrir Alþingi með skriflegri skýrslu ráðherra eigi síðar en á vorþingi 2030.