sýslumaður.
Herra forseti. Það er auðvitað fagnaðarefni að þetta mál skuli vera komið svona langt hér í þinginu. Þetta hefur verið reynt áður, eins og menn vita, en ekki gengið upp. Ég lít í raun og veru á þetta mjög einföldum augum. Þetta er ákveðið hagræðingarmál. Þetta mál tryggir að það sé auðveldara að færa verkefni á milli landshluta. Þetta er mál sem ætti að spara ríkissjóði fjármuni þannig að þetta fer betur með opinbert fjármagn. Það eru líka ákvæði í þessu sem tryggja það að tiltekið hlutfall starfa verði úti á landi. Það er því búið að girða fyrir ákveðnar áhyggjur sem menn höfðu og ég trúi því ekki að óreyndu að allir stjórnarandstöðuflokkarnir ætli að vera á rauða takkanum þegar við samþykkjum þetta góða mál. Ég vissi af andstöðu Framsóknarflokksins við þetta og virði þau sjónarmið þótt ég sé ekki sammála þeim, en mér finnst sérkennilegt ef t.d. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að vera á rauðu í þessu. Það finnst mér ekki vera alveg í samræmi við það sem sá flokkur hefur talað fyrir í gegnum tíðina. Mögulegt er að guli takkinn verði ofan á. Við verðum bara að sjá það hér við atkvæðagreiðsluna. Í öllu falli finnst mér þetta áhugavert. (Gripið fram í: Ég heyri raddir.)