157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

sýslumaður.

111. mál
[17:58]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Við í Samfylkingunni styðjum þetta frumvarp og höfum gert hér í gegn. Ég er sammála hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni um að hér sé ákveðin ögurstund. Erum við í pólitík fyrir innihald eða umbúðir? Hér erum við með frumvarp sem bókstaflega fækkar ríkisstofnunum og hagræðir í ríkisrekstri en tryggir þó að störfin færist á landsbyggðina en ekki til höfuðborgarsvæðisins. Starfsstöðvar haldast opnar. Auðveldara verður að færa verkefni frá höfuðborgarsvæðinu út á landsbyggðina þar sem flestir búa vissulega hér en auðvelt er að vinna bakendastörfin úti á landi. Það er innihald frumvarpsins. Og hvernig greiða Miðflokkurinn, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur atkvæði? Það sést á töflunni.