157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:02]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er fagnaðarefni að þetta sé að komast í gegn og orðið mjög tímabært. En ég benti á það í umræðum um málið í síðustu viku að í raun mætti og ætti að útvíkka þessi mál enn frekar en hér er gert ráð fyrir. Það vantar t.d. heimildir fyrir því — þegar einstaklingur hefur fengið vernd hér á landi, t.d. fylgdarlaust ungmenni, sem er þá undir 18 ára aldri, kemur á fölskum forsendum, segir ekki satt til um aldur og fær svo vernd en kemur svo í ljós nokkru síðar eftir að fjölskyldusameining hefur átt sér stað og hvaðeina, að viðkomandi sagði ósatt um aldur jafnvel svo árum skiptir hvað það varðar. Það vantar heimildir til að taka á svona svikum og líka þegar einstaklingar og fjölskyldur eru að svíkja þau loforð (Forseti hringir.) sem þeir gefa áður en til verndar kemur um að fylgja stuðningsáætlun sem þeir skrifa upp á.