157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:08]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum hér að reka áfram mál hæstv. dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar þegar menn gerast sekir um annaðhvort sérstaklega alvarleg brot eða ítrekuð brot af öðrum toga. Okkur í Miðflokknum hefur á fyrri stigum þessa máls auðnast að herða, eða taka þátt í og leggja til að ákvæðin og skilyrðin fyrir því að verndin sé afturkölluð verði víkkuð þannig að þetta feli í sér þessi ítrekuðu brot og að ekki sé sérstaklega þrengt að þessari heimild stjórnvalda eins og upphaflega stóð til. Þessar hugmyndir hafa verið teknar inn í vinnuna sem nú stendur fyrir dyrum. Hins vegar eru enn ákveðin atriði sem þarf að ræða áfram um frekari breytingartillögur, hvort sem er frá Miðflokknum eða Sjálfstæðisflokknum. Ég er viss um að í allsherjar- og menntamálanefnd verður kostur á að gera það í sama góða samstarfsanda og hefur ríkt hingað til vegna þessa máls.