útlendingar.
Virðulegi forseti. Þetta mál hefur fengið góða umfjöllun hér á þingi. Af því að hér var rætt um skýr skilaboð, þá er það mjög sterkt stef þegar ég funda með ráðherrum Norðurlandanna að þetta séu í reynd þrjár stoðir: lög, framkvæmd og skilaboð. Þetta þrennt þurfi að haldast í hendur. Við erum að tala um afturköllun verndar í þeim tilvikum þar sem einstaklingur hefur annaðhvort framið alvarlegt brot eða ítrekað. Það myndi ég segja að spanni róf afbrota býsna vel. Mér finnst gott að finna stuðning við þetta mál og tek undir með þeim sem hér hafa nefnt að það þurfi að hafa í huga að hér er um mjög lítinn hóp að ræða. Í samfélagslegu tilliti skiptir máli að eiga þetta verkfæri, annars vegar til að ná fram því að geta afturkallað vernd en hins vegar til að höggva ekki í stuðning almennings við kerfið. Það eru fleiri útlendingamál í pípunum. (Forseti hringir.) Þau liggja fyrir á þingmálaskrá. Ég tek ábyrgð mína alvarlega. Ég segi að við tökum vel á móti því fólki sem hingað kemur til lands en því fylgir ábyrgð að fá alþjóðlega vernd. Brjóti menn af sér hefur það afleiðingar.