157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:11]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er gott mál sem við í Flokki fólksins höfum lagt áherslu á. Ég er alveg á því að við verðum að fara yfir þessi mál og sérstaklega huga að því hvað hefur tekið langan tíma að koma þessu sjálfsagða máli á þennan rekspöl. Það hefur tekið núna í hátt í ár að klára þetta mál.

Það þarf að hafa einnig ofarlega í huga að í stjórnarsáttmálanum kemur fram að það eigi að gæta samræmis við regluverk á öðrum Norðurlöndum þegar komi að þessum málum og hin löndin í kringum okkur eru að herða regluverk. Ef við ætlum að ná í skottið á hinum löndunum og ekki að verða eftirbátur þeirra þá þurfum við að vera samtaka í því að hraða þeim frumvörpum sem eru á leiðinni inn og vinna þau í sameiningu því að hér er um mikilvægan málaflokk að ræða. Ég vil nefna hér brottfararstöðina og fleiri mál sem við þurfum að vera samhent í að ná hér í góðri sátt í gegnum þingið.