157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:14]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar að þessi mál snerta ekki marga, það er vissulega rétt, en ég held bara að í augum okkar og þjóðarinnar sé þetta ákveðið réttlætismál sem við þurfum að ná í gegn, að hægt sé að afturkalla vernd fólks sem er hér og brýtur af sér. Svo er það þessi 18 mánaða regla sem við verðum að ná að nema úr gildi og fleira. Ég vil bara þakka fyrir þá vinnu sem hefur verið í nefndinni og hún mun halda áfram, veit ég, á góðum nótum.