stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða framsögu um þetta mikilvæga mál og fagna því mjög að við séum að sjá fram á víðtækari vinnu sem snýr að okkar öryggis- og varnarmálum því að það er sannarlega þörf á því. En í þessu samhengi er mikilvægt, þegar við horfum á það að fjármagn hefur verið aukið mikið, við höfum verið að sjá 20% aukningu á hverju ári frá árinu 2016 til öryggis- og varnarmála, að það mun eðlilega reyna á það, eins og hv. þingmaður kom inn á, hvernig við útfærum hlutina, hvernig við útfærum ólíkar áherslur. Ég held að það sé breið samstaða, ef við horfum á málin hérna innan lands, um að reyna að nýta þetta framlag sem allra best í samhengi við hafnir, í samhengi við greiningargetu, í samhengi við vegakerfið og bara almennt þessa innviði sem þurfa að vera í lagi þannig að við séum undirbúin fyrir ólíkar sviðsmyndir.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort umræðan um veikleika sem tengjast gagnaverum hafi eitthvað komið til umræðu í nefndinni. Það er meira og meira að koma fram í fréttum að það eru ólíkir aðilar, stundum óprúttnir aðilar og aðilar í glæpastarfsemi, sem geyma gögn hér á landi. Við sjáum fram á að gagnaiðnaður muni stækka mikið, hann hefur stækkað mikið frá árinu 2015. Auðvitað eru ólík svæði í heiminum með miklu meiri áskoranir sem tengjast þessu, en þetta er sannarlega eitthvað sem er mögulegur áhættuþáttur fyrir okkur. Kom þetta sérstaklega til umræðu í nefndinni og hver voru helstu sjónarmiðin?