stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Ég held að mér sé óhætt að segja að við höfum ekki farið á dýptina, a.m.k. um akkúrat þennan áhættuþátt, en við ræddum auðvitað mjög mikið um netöryggi í breiðu samhengi, allt frá því að hægt sé að taka landið einfaldlega úr sambandi í gegnum kapla, yfir í netógnir, netárásir. Gagnaver komu inn í það, þótt ekki væri nema líka út frá hýsingu gagna erlendra aðila, eins og hv. þingmaður nefnir. En eitt af því sem hefur aukist í umræðunni, sérstaklega í öðrum löndum og aðeins hér og ég held að sé eitthvað sem við ættum að setja á dagskrá, snýr að því sem nefnt hefur verið stafrænt fullveldi. Það er eitthvað sem ég held að við hér á Íslandi þurfum að huga sérstaklega að — þó að það svari kannski ekki beint spurningu hv. þingmanns þá leyfi ég mér að nota tækifærið og nefna það hér — annars vegar til að minnka áhættuna ef eitthvað mjög dramatískt gerist varðandi strengi og við séum með varaleið hér þar sem gögn eru hýst, hins vegar er auðvitað líka vaxandi umræða um það hvort það sé réttlætanlegt eða of mikil áhætta mögulega að viðkvæmustu gögn, ýmist ríkja eða einstaklinga, borgara, séu hýst í skýjum í öðrum löndum þar sem ekki liggur nákvæmlega fyrir hverjir hafa aðgang að þeim. Ég veit að hér á Íslandi er verið að vinna að lausn því að ég held að það muni aukast að aðilar, sérstaklega stofnanir, ráðuneyti og fyrirtæki í landinu, vilji ýmist tryggja að gögnin séu hér ef eitthvað gerist varðandi tengingar og hins vegar að vita að gögnin séu einfaldlega hjá innlendum aðilum sem vitað er að við getum treyst og vitað hverjir hafa aðgengi að gögnum.