157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[18:51]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir að þetta þema, stafrænt fullveldi, skiptir gríðarlega miklu máli. Það skiptir máli fyrir okkur að hafa gögnin á öruggum stað og vita hverjir geta nálgast okkar viðkvæmustu gögn. Ég hvet hv. þingmann og nefndina í heild sinni til að skoða þá veikleika sem geta verið þarna og hvort þörf sé á að kortleggja eða setja einhvers konar regluverk sem snýr að gagnasettunum sjálfum sem eru vistuð á ólíkum stöðum, því að ef við erum að tala um ákveðna tegund gagna getur það gert okkur að ákveðnum segli í samhengi sem við viljum ekki vera í.

Síðari spurningin sem mig langar til að spyrja hv. þingmann, fyrrverandi hæstv. ráðherra, snýr að því sem varð töluverð breyting á eftir innrás Rússa í Úkraínu, þ.e. þátttöku Íslands í vopnakaupum eða sjóðum sem kaupa vopn sérstaklega. Þessi umræða hefur komið upp reglulega, hvort Ísland eigi að taka þátt í slíkum vopnakaupum eða halda sinni áherslu, sem ég held að sé svo breið sátt um; að við séum að beina sjónum okkar að orkumálum, jafnréttismálum og þessum málaflokkum. Mig langar líka að spyrja hv. þingmann: Kom þessi umræða um þátttöku Íslands í vopnakaupum sérstaklega upp í vinnu nefndarinnar? Hver var sýnin þar? Ég held að þetta sé lykilmál varðandi frið og stuðning við þessa stefnu því að Íslendingar vilja almennt að við tökum þátt í borgaralegum verkefnum.