157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[18:53]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Í vinnu þingmannahópsins sem skilaði skýrslunni, sem er grunnurinn að þingsályktunartillögunni sem við ræðum hér, ræddum við ekki sérstaklega varnartengdan stuðning við Úkraínu. Það er auðvitað skýrt og tekið skýrt fram að við vinnum þétt innan Atlantshafsbandalagsins og það liggur fyrir að við stöndum við þær skuldbindingar sem bandalagið hefur sett, þar á meðal um varnartengdan stuðning við Úkraínu og það höfum við gert, við höfum uppfyllt það lágmark sem sett var á síðasta leiðtogafundi. Síðan er bara almennt unnið samkvæmt þingsályktun sem samþykkt var hér þverpólitískt þar sem var sérstaklega tiltekið að hluti af stuðningi okkar til handa Úkraínu væri varnartengdur stuðningur, þ.e. stuðningur til að Úkraína geti varið innviði og sína borgara. Sú þingsályktun er í gildi. Þar segir reyndar að við ætlum að halda í við Norðurlöndin þegar kemur að stuðningi. Við erum í órafjarlægð frá því. Það var ekki djúp umræða um nákvæmlega þann þátt vegna þess að það er í raun bara í gildi annars vegar stefna stjórnvalda og hins vegar — og hvort tveggja í senn, það tengist — gildandi stefna sem var samþykkt hér af þinginu. Það hefði verið mikil stefnubreyting ef við hefðum tekið einhverja aðra ákvörðun. Í vinnu nefndarinnar, hv. utanríkismálanefndar og hjá umsagnaraðilum kom þetta ekki sérstaklega til tals, kannski vegna þess að við erum meira að horfa inn á við, hér á Íslandi, og svo á svæðisbundið samstarf og annað alþjóðasamstarf þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. En hluti af því að vera verðugur bandamaður og bandamaður í raun er að skila okkar í því og það er áfram stefnan (Forseti hringir.) en það liggur auðvitað fyrir að það er einhver skoðanamunur hér á þingi, þótt það hafi ekki birst á sínum tíma í þingsályktuninni.