157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[19:08]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er sannarlega heiður að fá að taka til máls undir þeim lið sem lýtur að nýrri og heildstæðri mótun raunverulegrar ábyrgrar stefnu í öryggis- og varnarmálum fyrir Ísland. Ég vil byrja á því að segja, og þetta hefur auðvitað verið mikið rætt í gegnum tíðina, að við stöndum á þessum stað á heimskringlunni eigandi samt ekki raunverulega stefnu sem kalla má varnarstefnu, enda erum við líka herlaus þjóð. Þessi umræða verður að fara fram af yfirvegun. Það skiptir máli hvernig við tölum um öryggismál. Við ætlum ekki að gera lítið úr þeim alvarleika sem við stöndum frammi fyrir heldur verðum við að tryggja að við bregðumst rétt við, að við gerum greinarmun á því sem er raunhæft og því sem er óljós framtíðarsýn, að við vitum hvar við stöndum og hvað við getum gert sjálf, hvar við getum komið öðrum til aðstoðar og hvar við þurfum á hjálp að halda.

Þegar við færum þessa umræðu heim skiptir máli að halda fókus. Við erum herlaust ríki, við erum ríki sem byggir öryggi sitt á alþjóðastarfi, alþjóðalögum og alþjóðabandalögum. Okkar kjarnastoð verður að vera umfram allt annað Atlantshafsbandalagið, NATO. Það er staðreynd sem hefur ekki breyst og mun vonandi ekki breytast. Það er líka mikilvægt að spyrja ekki að því hvað aðrir eru að gera heldur fyrst og fremst hvað við þurfum sjálf að gera. Þess vegna finnst mér mikilvægt, svo ég tali nú bara fyrir sjálfa mig, að vekja ekki ótta gagnvart því sem gæti gerst í alþjóðasamskiptum eða jafnvel vekja vonir um eitthvað sem er óraunhæft eða a.m.k. ekki líklegt að gerist í allra nánustu framtíð. Við verðum þrátt fyrir allt að tala af raunsæi og ég kalla eftir því.

Við eigum svo mikið undir því að ná hér saman um mál sem skipta okkur máli. Ég talaði hér áðan um heiður. Já, það er mér heiður að við náum þverpólitískri sameiginlegri sýn um þetta mál vegna þess að hér hefur því verið fleygt fram að það sé stjórnmálaflokki í ríkisstjórn til minnkunar að reyna að ná saman með flokkum í minni hlutanum. Ég vil ekki búa í lýðræðisríki þar sem þessi grundvallarsýn á sér ekki hljómgrunn meðal þeirra sem sitja hérna á Alþingi. Það er skylda okkar að reyna að ná saman, það er grundvallarskylda okkar og sérstaklega þeirra sem sitja í ríkisstjórn að gera hvað þeir geta til að finna sameiginlega punktinn. Þó að ég sé ekki hokin reynslu úr samningaherbergi Atlantshafsbandalagsins veit ég þó víst að þetta snýst um það hvar kommurnar standa og hvar þær liggja. Við eigum að ná sameiginlegri grundvallarsáttmálasýn um það hvað við viljum sjá í íslenskri varnarmálastefnu sem vonandi heldur til margra ára.

Ég vil færa fulltrúum Miðflokksins hér í kvöld, og Miðflokknum í heild sinni, verðskuldar þakkir fyrir að koma til og taka skrefið til okkar. Ég vil sömuleiðis þakka öðrum nefndarmönnum fyrir að hafa leitt það samtal því þetta er gott fyrir Ísland. Það hefði verið vont fyrir Ísland en við hefðum þurft að draga hvert annað í dilka og kalla okkur illum nöfnum og segja: Hérna er afstöðuleysi út af einhverju sem er ekki grundvallarþáttur í íslenskri öryggis- og varnarmálastefnu.

Forseti. Við eigum nefnilega ekki að gera þetta mál að pólitísku bitbeini í dægurþrasinu og við eigum heldur ekki að taka heljarstökk í þessu máli. Mér líst vel á það hvert þetta mál er að stefna og ég vona að við höldum áfram á sömu braut.