fullgilding samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun. Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund eins og fram kemur í nefndaráliti sem liggur frammi. Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á samningi um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun sem undirrituð var hinn 15. nóvember 2024.
Í greinargerð með tillögunni kemur fram að samningurinn, sem Ísland, Nýja-Sjáland, Sviss og Kosta Ríka gerðu með sér, sé fyrsti sértæki samningurinn á sviði alþjóðaviðskipta sem hefur það að markmiði að nýta hefðbundin ákvæði viðskiptasamninga til að styðja við orkuskipti og aðrar aðgerðir í loftslags- og umhverfismálum. Samningaviðræður hófust í kjölfar þátttöku ríkjanna í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna haustið 2019. Markmiðið var að hópur líkt þenkjandi ríkja sem hefðu náð góðum árangri á sviði umhverfismála og sjálfbærni ynni að metnaðarfullum samningi sem skapaði fordæmi fyrir önnur ríki að fylgja. Eftir gildistöku samningsins verður hann opinn fyrir aðild annarra aðildarríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, sem reiðubúin eru til að undirgangast skuldbindingar hans. Vonir standa því til að áhrif samningsins aukist samfara aðild fleiri ríkja. Samningurinn kallar ekki á lagabreytingar hérlendis.
Í umsögnum og máli gesta fyrir nefndinni komu fram ýmsar ábendingar, t.d. varðandi það hvort samningurinn hefti möguleika til að útfæra markmið ríkisins um neyðarbirgðir eldsneytis og hvernig samningurinn samræmist núverandi skuldbindingum Íslands á grundvelli EES-samningsins um losunarheimildir og ríkisaðstoð. Í þessu sambandi vísar meiri hlutinn til minnisblaðs utanríkisráðuneytisins þar sem fram kemur að samningurinn hindrar í engu hið opinbera við útfærslu markmiðs ríkisins um neyðarbirgðir eldsneytis. Þá kemur fram í minnisblaðinu að samningurinn samræmist skuldbindingum Íslands á grundvelli EES-samningsins um losunarheimildir og ríkisaðstoð.
Frú forseti. Meiri hlutinn flytur tæknilega breytingartillögu til að tryggja að samræmi sé á milli tillögugreinar og fyrirsagnar tillögunnar annars vegar og formlegs heitis samningsins hins vegar en hann nefnist formlega samningurinn um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbærni.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt og undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Dagbjört Hákonardóttir, Sigmar Guðmundsson, Sigurður Helgi Pálmason, Sigurður Ingi Jóhannsson og Víðir Reynisson.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu.