157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Næsta fjármálaáætlun sem verður lögð fram í mars er ekki hefðbundið þingskjal. Hún er prófraun sem mótar verðbólguvæntingar, hefur áhrif á vinnumarkað og væntingar heimila og fyrirtækja. Þegar áætlun er óraunsæ eykst óvissan og vextir verða hærri lengur en nauðsynlegt er. Fjármálaáætlun verður því að vera raunsæ og gegnsæ. Hún þarf að sýna skýrt hvaða aðgerðir verða framkvæmdar, hvenær og hver ber ábyrgð. Þar duga ekki almennar yfirlýsingar. Þar þurfa að koma fram hagræðingaraðgerðir, forgangsröðun og markmið um betri nýtingu fjármuna þannig að markaðurinn sjái að hið opinbera ætli að leggja sitt af mörkum af alvöru. Áætlunin þarf einnig að senda skýr skilaboð um að ríkisfjármálin styðji við verðbólgubaráttuna með meiri afkomu en áður var stefnt að. Ríkissjóður má ekki auka óþarfa eftirspurnarþrýsting á sama tíma og heimili og fyrirtæki eru undir mikilli vaxtabyrði. Samhliða því verður að gera grein fyrir boðuðum lagabreytingum á verðtryggingu um næstu áramót, samanber yfirlýsingu forsætisráðherra í vikunni. Það er stór og áhugaverð kerfisbreyting sem getur skipt sköpum fyrir heimilin en haft óæskileg áhrif ef hún er illa útfærð. Skýra þarf einnig hvernig komið verður í veg fyrir óeðlileg áhrif á eftirspurn.

Virðulegur forseti. Fjármálaáætlun í mars verður að sameina þrennt; fjárhagslega festu, gegnsæjar aðgerðir til að lækka verðbólguvæntingar og útfærða sýn á breytingar á verðtryggingu.