Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Háir vextir hafa verið að kæfa heimili landsins mörg undanfarin misseri, ekki verðbólgan heldur vextirnir. Á sama tíma og 5,2% verðbólga hækkar útgjöld heimila um kannski 15.000 kr. á mánuði greiða þau núna 406.000 kr. í vexti af 50 millj. kr. láni. Það er um 240.000 kr. meira en ef vextirnir væru 4%. Hvernig á það að ganga upp að lækna verðbólgu með meðulum sem eru margfalt verri en sjúkdómurinn sjálfur? Það líður hins vegar ekkert öllum illa í verðbólgu. Þeim sem ráða yfir stórum hluta fjármagnsins í landinu og hafa gríðarleg áhrif á hversu mikið af því er í umferð líður bara nokkuð vel samkvæmt hagnaðartölum bankanna. Lífið hreinlega leikur við þá, ef marka má ársuppgjör Landsbankans með hagnað upp á 39.000 millj. kr. á síðasta ári. Það er ansi góð uppskera í verðbólgunni. Ef hagnaður hinna bankanna er svipaður hefur almenningur greitt bönkunum vel yfir 100 milljarða kr. í hagnað. Ef þessum hagnaði væri skipt jafnt á milli allra heimila í landinu fengi hvert heimili um 700.000 kr. í sinn hlut. Það myndi nú aldeilis létta mörgum lífið. En þessu er náttúrlega öfugt farið. Heimilin hafa þvert á móti neyðst til að greiða bönkunum þessar fjárhæðir og miklu meira til. Heimilin hafa verið svipt gríðarlegu fjármagni til að verja þau fyrir margfalt minni skaða. Það er viðurkennd hagfræði að til að berjast gegn verðbólgu þurfi að minnka peningamagn í umferð. Það hlýtur að vera hægt að gera það með öðrum hætti en að hækka endalaust vexti á húsnæðislánum. Sú aðferð bitnar mest á þeim sem síst skyldi, þeim sem minnst eiga og mest skulda, eða með öðrum orðum: þeim sem valda engri þenslu. Skuldug heimili hafa einfaldlega ekki efni á því.
Það má líka færa fyrir því rök að háir vextir fóðri verðbólguna. Einhvern veginn þurfa fyrirtæki að mæta auknum vaxtakostnaði og augljósa leiðin er að hleypa kostnaðinum út í verðlagið. Það er hreinlega ekki réttlætanlegt að bankarnir græði á tá og fingri sem aldrei fyrr á sama tíma og heimili landsins berjast mörg hver í bökkum. Það hefur þegar verið gengið of nærri heimilum landsins. Við verðum að stöðva þessa aðför að þeim og leita nýrra leiða til að ná niður verðbólgunni.