157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Eva Pandora Baldursdóttir (V):

Virðulegi forseti. Börn í dag alast upp í heimi þar sem netið er ekki aukahlutur heldur hluti af daglegu lífi. Þar læra þau, leika sér, mynda vináttu og móta sjálfsmynd sína. Netið býður upp á ótal tækifæri en líka raunverulega áhættu. En tækni er ekki óvinurinn, hún er verkfæri. Spurningin er hvernig við notum hana og hvernig við styðjum við börnin okkar í stafrænum heimi. Við sem fullorðin þurfum stundum að viðurkenna að börnin eru oft skrefi á undan okkur tæknilega en það þýðir ekki að við séum valdalaus, þvert á móti. Með því að vera með þeim, sýna áhuga og vera til staðar eykst öryggi þeirra. Ég mæli með því að foreldrar prófi að spila Minecraft með börnunum sínum. Það er í alvörunni skemmtilegt.

Það er líka pínu skondið að rifja upp að margir sem voru í gamla daga skammaðir fyrir að vera allt of mikið að hanga í tölvunni eru í dag einmitt fólk sem hefur lifibrauð sitt af tækni, forritun og hugbúnaðarsmíði. Það sem einu sinni var talið vera argasta tímaeyðsla er í dag dýrmæt færni. En jákvætt viðhorf þýðir ekki að við lokum augunum fyrir áhættunni. Börn verða sannarlega fyrir áreitni, einelti og ofbeldi á netinu. Persónuupplýsingum þeirra er safnað og athygli þeirra nýtt í viðskiptalegum tilgangi. Netöryggi barna snýst því um réttindi, ábyrgð og vernd. Ábyrgðin má ekki leggjast eingöngu á herðar foreldra eða barna sjálfra. Skólar, sveitarfélög, ríki og tæknifyrirtæki bera öll ábyrgð. Við þurfum fræðslu, skýrari reglur og þjónustur sem eru hannaðar með hag barna að leiðarljósi. Spurningin er ekki hvort börn eigi að vera á netinu, þau eru það nú þegar. Spurningin er hvort við ætlum að vera þar með þeim. Það er okkar ábyrgð.