Staða grunnskólanna.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa góðu og gegnu umræðu sem ég fagna sérstaklega. Ég ætla að byrja á því líka að segja hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni: Nei, ég var ekki tekin á teppið og já, ég nýt 100% trausts við það sem ég er að gera.
Við eigum, frú forseti, að tala miklu oftar um menntamál í þessum sal og hér hefur komið ráðherra sem er alltaf til í slíka umræðu. Hér eigum við líka að tala miklu oftar um börnin okkar yfirleitt. Í skólum landsins starfa öflugir kennarar, skólastjórnendur og fagfólk sem vinnur með börnunum okkar á hverjum einasta degi, oft við erfiðar og krefjandi aðstæður. Ég ber mikla virðingu fyrir þessu starfi. Okkur sem berum ábyrgð ber skylda til að standa við bakið á skólafólki og nemendum. En virðing felst ekki í því að loka augunum. Hún felst í hreinskilni. Hún felst í því að horfast í augu við staðreyndirnar, jafnvel þegar þær eru óþægilegar. Samfélagið hefur tekið stakkaskiptum á örfáum áratugum. Tæknibreytingarnar hafa verið hraðar, kröfur hafa aukist og fjölbreytni nemendahópsins hefur vaxið gríðarlega. Í dag eru um 30% grunnskólanema og 25% framhaldsskólanema með erlendan bakgrunn. Í sumum skólum er hlutfallið allt að 60%, 70%, jafnvel 85%. Þetta er ekki vandamál, þetta er veruleikinn, veruleiki sem kallar á aukinn stuðning, öfluga íslenskukennslu, fjölbreyttar aðferðir og sterkari stoðþjónustu.
Á sama tíma sjáum við þróun sem er einfaldlega óásættanleg. Brotthvarf drengja úr framhaldsskólum er með því mesta sem þekkist í Evrópu og niðurstöður PISA sýna okkur svart á hvítu að lesskilningur íslenskra nemenda hefur versnað meira en hjá öðrum samanburðarþjóðum. Í PISA árið 2022 náðu aðeins 60% íslenskra nemenda grunnviðmiðum OECD í lesskilningi, að meðaltali í OECD var hlutfallið 74%. Enn alvarlegra er að árið 2022 náðu 47% drengja ekki grunnfærni í lesskilningi samanborið við 30% tíu árum áður. Þetta er gríðarleg fjölgun og fjöldi íslenskra stúlkna sem nær ekki þessari grunnfærni hefur nær þrefaldast á sama tíma. Þetta snýst ekki um tölur á blaði, þetta snýst um velferð barnanna okkar, líf þeirra og framtíð. Þetta er þróun sem við getum ekki og munum ekki sætta okkur við. Þess vegna legg ég ríka áherslu á snemmtæk inngrip og heildstæða nálgun. Við þurfum að grípa börnin snemma áður en þau dragast aftur úr, áður en þau missa trúna á sig sjálf. Í því samhengi horfum við m.a. til þess sem kallað er finnska leiðin. Þar er skólinn aðlagaður barninu en ekki barnið skólanum. Þar ríkir traust til kennara, gefið er faglegt svigrúm og áhersla lögð á dýptina fremur en hraðann, sérstaklega í lestrarkennslu. Við eigum líka að vera ófeimin við að skoða nýjar leiðir og taka jafnvel erfiðar ákvarðanir. Ég hef lýst þeim skoðunum mínum að endurskoða þurfi hugmyndirnar að baki skóla án aðgreiningar, ekki til að útiloka neinn heldur einmitt til þess að skólinn geti mætt barninu á þess eigin forsendum. Ég hef einnig nefnt verkefnið Kveikjum neistann sem hófst í Vestmannaeyjum árið 2021 sem hluta af lausninni. Þar er einmitt lögð áhersla á snemmtæka íhlutun, þátttöku foreldra og heildstæða sýn á læsi, starfsævi, hreyfingu og líðan barna. Reynslan er jákvæð en að sjálfsögðu verðum við ávallt að byggja stefnu okkar á gögnum, fagmennsku og því sem virkar í raun, en ekki á tískubylgjum.
Málshefjandi spyr hvernig snúa megi vörn í sókn. Í því sambandi vil ég nefna nokkrar mikilvægar breytingar. Ný samræmd stöðu- og framvindupróf hefjast eftir mánuð, árið í ár hefur verið skilgreint sem ár læsis, við boðum símafrí í skólum og hærri aldursmörk á aðgengi að samfélagsmiðlum. Við boðum meira gagnsæi í námsmati og skýrari einkunnagjafir. Ég hef líka hleypt af stað rýni í reiknilíkani framhaldsskóla, endurskoðun námskrár, styrkingu kjarnagreina og ég vil opna fleiri leiðir fyrir fólk inn í skólana. Allt þetta snýst um eitt, velferð barna, rétt barna til menntunar, rétt barna til að læra að lesa sér til gagns til að auðvelda þeim að skilja umheiminn og til að finna sinn eigin styrk. Ég er bjartsýn á að með samstilltu átaki, skýrri stefnu og trausti til fagfólks þá getum við snúið þessari þróun við. Við skuldum börnunum okkar ekkert minna en það.