157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

Staða grunnskólanna.

[14:18]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir að opna á þessa umræðu og þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera fyrsti valdamaður hér í íslensku menntakerfi sem þorir að segja þetta upphátt sem hæstv. ráðherra sagði áðan. Þetta er algjörlega nýtt í íslenskri menntasögu.

Skólakerfið er verulegt hagsmunamál fyrir okkur öll, bæði fyrir lýðræði og efnahag. Það að geta ekki horfst í augu við vonda tölfræði er meðvirkni sem bitnar á börnunum okkar. Kerfið þarf ekki að skila þessum niðurstöðum. Við fengum niðurstöður 2022 sem sýndu að við hefðum tapað tveimur heilum skólaárum frá 2018. Það var engin umræða meðal skólamanna um þetta, engin, í tvö ár. Það var ekki fyrr en einstaklingar á gólfinu hófu upp raust sína að það fór að verða umræða um þessi mál. Við skulum athuga hvað það er sem skiptir máli í menntun. Helmingur hagvaxtar er skapaður af menntun. 9% af árstekjum skapast menntun hvert ár. 5% framleiðniminnkun samkvæmt OECD ef við höldum áfram á sömu braut sem hæstv. ráðherra vill greinilega snúa af og ég hrósa honum fyrir það. Það eru 250 milljarðar á ári sem við töpum eins og staðan er núna. Og það sem kemur eiginlega aldrei fram í umræðunni er að einungis 3% íslenskra nemenda, meira en þrisvar sinnum færri en allra annarra Norðurlandanna, eru með afburðahæfni í lesskilningi. Það er þessi hópur sem drífur landið áfram, skapar nýtt og tekur forystu í alls konar málum. Þessir krakkar eru algerlega út úr umræðunni vegna þess að við erum endalaust að einblína á botninn af því við stöndum svo hörmulega þar. Það þýðir ekki endalaust að tala og hjala eitthvað. Við verðum að tala skólakerfið upp. Það er kerfið sem er vandinn, ekki kennararnir, ekki nemendurnir, það er kerfið sem er vandinn og við verðum að geta horfst í augu við það.