Staða grunnskólanna.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég óttast það að umræða um skólamál, eins og hún hljómar stundum úr þessum stól, geri ekki það gagn sem henni er ætlað að gera. Ég efast ekki um að þeir sem gagnrýna skólakerfið geri það af góðum hug. Þau vilja að nemendum gangi betur. En margt af því sem stjórnmálamenn og aðrar opinberar persónur leyfa sér að halda fram um gang mála í skólakerfinu okkar er einfaldlega ekki rétt og slík umræða rífur niður í stað þess að byggja upp.
Forseti. Með þessu er ég ekki að segja að við megum ekki gagnrýna skólakerfið, en við þurfum að vanda okkur. Þjóðfélagsumræðan hér heima og erlendis hefur því miður þróast í þá átt að henni er beinlínis ætlað að vekja ótta, óöryggi og gremju. Trú á því að kerfin okkar virki sem skyldi er t.d. á hröðu undanhaldi meðal unglinga og þar með talið skólakerfið. Ef áherslur yfirvalda í menntamálum í gegnum tíðina eru skoðaðar sést vel að menntamál eru mjög pólitísk. Ég er sjálf kennari og er alin upp af kennurum og ég leyfi mér að halda því fram að margt af því sem stjórnmálin hafa lagt af mörkum til menntakerfisins hefur valdið skaða þótt það hafi verið gert í góðri trú. Fjölmörg dæmi vitna um það, bæði frá hægri og vinstri.
Dæmin sýna að við verðum að vanda okkur betur. Í því samhengi fagna ég vinnu hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem er að þróa matstæki til að styðja við skólastarf og gera nám og kennslu markvissari en um leið finnst mér umhugsunarefni að niðurstöður prófa verði notaðar til að bera saman einstaka skóla án tillits til félagslegra og efnahagslegra þátta sem í breyttu þjóðfélagi hafa að öllum líkindum enn meiri áhrif en áður.
Frú forseti. Ég bendi á að þrátt fyrir að lesfimiprófin sem hafa verið lögð fyrir nemendur í grunnskóla undanfarin tíu ár séu valkvæð hefur þátttaka í þeim verið í kringum 90% í 1.–10. bekk. Þannig eru orðin til dýrmæt og marktæk gögn sem við getum notað í uppbyggilegum tilgangi og við mættum svo sannarlega gera meira af því.