Staða grunnskólanna.
Frú forseti. Mikið hefur verið rætt um skólamál undanfarin ár enda málaflokkurinn stór og mikilvægur. Á árum áður starfaði ég bæði sem kennari og sálfræðingur í grunnskólum og tel mig þekkja starfið innan þeirra ágætlega. Flestum börnum líður ljómandi vel í sínum skóla, bæði varðandi námið og félagslega stöðu. Það skiptir miklu máli þegar rætt er um börn að vita að þau eru jafn ólík og þau eru mörg. Þau þroskast misjafnlega og þarfir þeirra eru að sama skapi ólíkar, jafnvel innan sama árgangs. Væntingar þeirra til skólans og námsins eru að sama skapi mismunandi. Félagslegi þátturinn er ekki síður mikilvægur en námið sjálft og ástundun þess. Barn sem er framúrskarandi í námi þrífst illa í skólaumhverfinu án vina og kunningja. Það er óviðunandi staða ef nokkurt barn er einmana og einangrað í skólanum sínum.
Á síðustu árum hefur athyglinni verið beint að eflingu málþroska, læsis og lesskilnings í ljósi slakrar niðurstöðu íslenskra nemenda í PISA-könnunum. Það er ljóst að einhvers staðar er pottur brotinn í kerfinu. Finna þarf út hverju þarf að breyta til að tryggja að öll börn fái tækifæri til að nýta hæfileika sína og færni til hins ýtrasta. Markmiðið er að börn útskrifist úr grunnskóla, ekki aðeins læs heldur að þau geti einnig lesið sér til gagns og gamans. Ný lög um breytingu á grunnskóla hafa nýlega tekið gildi sem fela í sér miklar bragarbætur, þar á meðal nýjan matsferil sem mun breyta miklu. Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem dregur reglulega upp heildstæða mynd af stöðu á framförum nemenda í gegnum alla skólagönguna.
Markmið barna- og menntamálaráðherra og okkar allra í Flokki fólksins er að öllum börnum geti liðið vel í skólunum, hvort sem hann er kallaður skóli með eða án aðgreiningar. Hér duga engar skyndisóknir. Þetta þarf að vera skipulagt langhlaup sem við hlaupum sameiginlega til enda.