Staða grunnskólanna.
Frú forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir að vekja máls á grunnskólanum, sömuleiðis hæstv. ráðherra Ingu Sæland fyrir að bregðast við og vera hér til samtals. Ég held að það sé heilbrigðismerki fyrir íslensk stjórnmál að við séum að ræða skólastigið, hvort sem það er grunnskólinn eða leikskólinn. Það er ekki að ástæðulausu. Við heyrðum alveg hvað málshefjandi, hv. þingmaður, hafði að segja um skólann. Hann fékk tækifæri til að lýsa sinni sýn, hver hún er, það er enginn agi, það er verið að stunda hér kynfræðslu í skólum. Innflytjendur, segir samflokksmaður hans. (SDG: Ég var að vitna í menntamálaráðherra. ) Heimsósómi á heimsósóma ofan, engar lausnir. Þetta eru allt saman bara vandamál.
5. desember 2023 er dagur sem rennur mér seint úr minni. Ég var þá fulltrúi Samfylkingarinnar í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem við fengum kynningu á PISA-niðurstöðunni sem er hér enn til umræðu. Hún var óásættanleg. Það hefði verið mjög auðvelt fyrir mig að slá ódýrar pólitískar keilur, benda á sökudólga og segja: Heyrðu, þetta hér er þessari ríkisstjórn að kenna. Ég valdi að fara ekki þá leið vegna þess að þetta er kollektíf ábyrgð okkar allra, okkar í stjórnmálunum, að setja okkur raunhæfa stefnu í menntamálum. Ég get fullyrt það hér að við eigum langt í land sem samfélag og sem stjórnmálaflokkar að búa til og útfæra hvaða árangri við viljum ná fyrir samfélagið okkar og þær leiðir sem við ætlum að fara til að ná þangað.
Ég ætla að segja eitt: Hér eru norrænar fyrirmyndir mjög nærtækar fyrir okkur sem samfélag. Lítum þangað. Ég vek athygli á einni finnskri leið sem er mér mjög kær. Í Helsinki á að dreifa Andrési önd inn á öll heimili barna. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að skoða einhverjar slíkar leiðir. Ég er áskrifandi að þessu fyrir börnin mín. (Forseti hringir.) Ég er að drukkna í þessu en þetta lesa börnin og það er ekkert barn fallegra en barn sem les. Það þarf ekki að vera Halldór Laxness, það getur verið hvað sem er (Forseti hringir.) og við þurfum líka að lesa fyrir framan börnin okkar.