Staða grunnskólanna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir að taka þátt í þessari mikilvægu umræðu. Við erum sem betur fer sammála um að menntamál séu ekki jaðarmál, þau eru ein af grunnstoðum samfélagsins. Skólarnir hafa mikil áhrif á framtíð barnanna okkar og þar með þjóðarinnar til lengri tíma. Að mínu mati stendur íslenska skólakerfið á tímamótum. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, það stendur á tímamótum. Ráðherrann sem hér stendur hlakkar til að taka umræðu við hv. þingmann að ári liðnu til að sýna honum árangurinn sem ég ætla að ná á þessu eina ári.
Við búum í samfélagi sem hefur breyst hraðar á stuttum tíma en nokkru sinni fyrr. Skólinn hefur þurft að fylgja þessari þróun eftir án þess að fá alltaf þau verkfæri sem hann þarf á að halda. Það bitnar ekki á kerfinu, það bitnar á börnunum. Þegar stór hluti þeirra nær ekki grunnfærni í lestri er það ekki einkamál einstakra skóla, það er samfélagslegt neyðarástand. Þegar stór hluti drengja hættir námi er það ekki tölfræðilegt frávik, heldur ákall um kerfisbreytingar. Við verðum að breyta hugarfari okkar. Skólinn á ekki að vera prófvél eða geymsla. Hann á að vera staður þar sem börn fá tækifæri til að blómstra, finna styrk sinn og byggja upp sjálfstraust til framtíðar.
Það krefst kjarks að gera breytingar þar sem velferð barnanna okkar vegur þyngra heldur en kerfislægar hefðir og venjur. Við þurfum að hafa kjark til þess að treysta okkar hæfasta fagfólki til að grípa snemma inn í þroska- og námsferli barna og gera hlutina með öðrum hætti en áður. Menntun er ekki kostnaður. Menntun er mikilvægasta fjárfestingin sem samfélagið okkar getur ráðist í.