157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[14:51]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi öryggis- og varnarmála og það er gott að við séum hér að greiða atkvæði um þessa stefnu. En ég legg áherslu á að þetta séu ekki bara orð. Það er gríðarlega mikilvægt, virðulegi forseti, alltaf, en sérstaklega núna, að sinna öryggis- og varnarmálum. Þrátt fyrir að flest það sem hæstv. ráðherra segi sé eitthvað sem maður getur tekið undir þá sér þess ekki merki í öðrum athöfnum. Ég vitna hér sérstaklega í það að við í minni hluta í fjárlaganefnd kölluðum eftir upplýsingum um þessi mikilvægu mál í margar vikur við gerð fjárlaga og svörin sem komu frá utanríkisráðuneyti og hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) voru ekki sannfærandi. Við erum í raun engu nær (Forseti hringir.) þegar verið er að vísa til þess að það sé búið að fullyrða að við séum að setja 24 milljarða til varnarmála. (Forseti hringir.) Þrátt fyrir að við höfum fengið orð á blaði þá erum við engu nær (Forseti hringir.) um það hvar það mál stendur. Það er ekki sannfærandi.

(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á ræðutímann.)