stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég vil, líkt og aðrir, koma upp og fagna þeirri samstöðu sem við erum að ná hér í dag í þessari stefnu um varnar- og öryggismál sem byggir þá enn sterkari stoðir undir þessa stefnu. Það er mikilvægt að hafa það í huga að þó að við tökumst á hér í þingsalnum um hin ýmsu mál þá erum við oft í kjarnanum sammála um þessi stóru markmið. Það er kannski leiðin að markmiðunum sem við deilum stundum um. Þetta er mjög jákvætt skref sem við erum að taka hér og ég býst við því að þetta sé fyrsta skrefið af fleirum sem munu fylgja í kjölfarið þannig að hér er verið að byggja góðan grunn.
Mig langar að nýta tækifærið og vitna í góða ræðu forsætisráðherra Kanada á dögunum í Davos þar sem hann talaði um þrjú atriði sem allar þjóðir þurfa að huga að núna. Þau eru matvælaöryggi, orkuinnviðir og varnar- og öryggismál. Hér erum við að stíga skref í þessu og byggjum auðvitað á varnarsamningi okkar við Bandaríkin og NATO. Við eigum líka að huga að matvælaöryggi og orkuiðnaði í landinu og ég býst við því að það verði hluti af áframhaldandi vinnu. En við í Framsókn, þingflokki Framsóknar, styðjum þessa stefnu hér í dag.