stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég vil bara koma hingað upp og fagna því sérstaklega að við séum komin á þennan stað að vera að greiða atkvæði um og, tel ég nokkuð öruggt, samþykkja með þverpólitískum hætti stefnu í öryggis- og varnarmálum í fyrsta skipti með formlegum hætti. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka aftur bæði þingmannahópnum sem vann að undirbúningi og hv. utanríkismálanefnd og öðrum. Ég fagna því sérstaklega að náðst hafi samstaða um þennan ramma, þessa stefnu og þetta plagg þótt það sé nokkuð ljóst að við munum örugglega takast á um ýmsar útfærslur í því. Það er í því ákveðin fæling að löggjafarþingið á Íslandi sendi frá sér mjög skýr og sameiginleg skilaboð um það að hér sé eining um þessa grundvallarhluti. Ég nefni það líka að þetta samstarf sem við erum í byggir á því að bandalagsþjóðir deili þessum grundvallargildum og við verðum einfaldlega að vera vakandi fyrir því hvort það breytist, sem ég vona svo sannarlega að það geri ekki. En við munum líka þurfa að vinna okkar heimavinnu mjög örugglega á næstu misserum.