157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[15:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að við séum að fara að samþykkja þessa stefnu í dag. Ég fékk ágætt tækifæri til að vinna sem varamaður í hópnum og sat nokkra fundi. Það er líka áhugavert að við samþykktum hér í þinginu 2016, fyrir tíu árum núna í apríl, þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sem var endurskoðuð 2023 og síðan er verið að samþykkja þetta plagg. Ég held nefnilega að öll þessi umræða eigi eftir að þroskast mikið. Ég held að það sé nauðsynlegt að henni verði haldið áfram með öflugum hætti vegna þess að þetta er raunverulega grunnforsenda hvers ríkis, að verja þegnana. Það sem við erum að upplifa núna varðandi fjölþáttaógnir og allt sem þeim tengist, það er svo margt sem fellur þar undir, eins og kemur fram í stefnunni, og það hefur orðið mikil breyting á allri umræðu í þinginu á ekki mörgum árum sem snýr að þessum málum. Ég vona svo sannarlega að sú vinna haldi áfram. Það er gott að við séum að samþykkja þetta hér í dag.