Fjarskiptastofa og fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu og yfirferð á þessu frumvarpi sem hér er til umfjöllunar. Auðvitað er mjög mikilvægt að vinna að þeim markmiðum sem stefnt er að með frumvarpinu, vinna gegn svikastarfsemi og vernda fjarskipti í gegnum sæstrengi og fleira. En frumvarpið sem hér liggur fyrir fór inn í samráðsgátt stjórnvalda og hlaut þar töluverða gagnrýni ýmissa aðila, annars vegar einstaklinga og samtaka sem láta sig náttúruvernd varða og hins vegar fjarskiptafyrirtækja og fleiri aðila. Ég vil beina sjónum mínum að umsögnum og athugasemdum þeirra aðila sem starfa á þessum markaði en þeir hafa gagnrýnt að frumvarpið leggi íþyngjandi skyldur á fjarskiptafyrirtækin, að ekki hafi verið lagt mat á efnahagsleg áhrif frumvarpsins og þeirrar gjaldtöku sem þar er undir. Og gjaldtakan er margs konar. Það er gjaldtaka fyrir tíðniafnot, það er kostnaður vegna útsendingar neyðarboða og fleira.
Ég vildi nota tækifærið til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins um réttlætingu þess að leggja þessi gjöld á fjarskiptafyrirtækin og hvers vegna hæstv. ráðherra sé hér að hverfa frá þeirri grundvallarhugsun að hið opinbera beri kostnað sem hlýst af almannaþjónustu. Hið opinbera beri kostnað af því en honum sé ekki velt yfir á fyrirtækin.