kosningalög, sveitarstjórnarlög og lögheimili og aðsetur.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar framsögu og að þetta frumvarp sé hér fram komið. Það hefur verið í vinnslu um eitthvert skeið og í víðtæku samráði, eins og kemur fram í greinargerð. Þetta er ansi mikil greinargerð og ég verð að játa að ég er ekki búinn að lesa hana til enda þannig að hugsanlega eru einhver svör við því sem ég ætla að spyrja um að finna í greinargerðinni.
Ég ætlaði kannski fyrst að spyrja um — ég held að ég hafi ekki séð neitt um kosningarathöfnina sjálfa, kjördaginn sjálfan. Ég sá það ekki hér en það má vera að það sé einhvers staðar þarna. Það gætu auðvitað komið upp vandræði þar. Það er alveg augljóst, herra forseti, að Grindvíkingur sem er búsettur á Akureyri og færir sitt lögheimili samkvæmt þessu frumvarpi til Grindavíkur nær ekki að kjósa, það er mjög ólíklegt að hann nái að kjósa á Akureyri þennan dag einfaldlega vegna þess að í fyrsta lagi eru oftast nær ekki opnar utankjörfundarskrifstofur á kjördag nema í algjörum undantekningartilvikum. Í öðru lagi yrði það tvísýnt að atkvæðið kæmist suður og alla leið inn á kjörstað í Grindavík fyrir lok kjördags. Þannig að ég er svona aðeins að spyrja um þetta. Auðvitað er þetta framkvæmdaratriði, þetta á ekki heima í lögunum eða frumvarpinu, ég veit það vel, en ég vildi kannski fá álit hæstv. ráðherra á því hvort það sé búið að huga að þessu og hvernig menn ætli að leysa þetta. Og svo þessu tengt er náttúrlega kjörskráin á Akureyri í þessu tilviki sem ég nefndi, hvort viðkomandi aðili sé þá tekinn — eðlilega verður hann tekinn út af kjörskrá. En það er mjög líklegt að helsta villumeldingin verði sú að fólk mæti á kjörstað á þessum dvalarstað og þá hefjist einhver ógurleg leit að viðkomandi í kjörskrá þar sem hann finnst ekki. Það er þá spurning hvort þeir verði þá sérmerktir í kjörskránni, þessir aðilar sem hafa fært lögheimilið.