157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

kosningalög, sveitarstjórnarlög og lögheimili og aðsetur.

400. mál
[16:46]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsöguna í þessu máli sem og hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir spurningarnar í andsvörum og svör ráðherra. Þetta varpaði góðu ljósi á málið. Þetta er alveg örugglega flókið mál í framkvæmd og ekki einfalt en þetta er gríðarlega mikið mál. Ráðherrann sagði hér áðan að þetta hefði verið unnið í miklu samráði. Það er rétt, t.d. voru þessar hugmyndir settar í samráðsgátt stjórnvalda þar sem Grindvíkingar voru hvattir til að segja sína skoðun á þessu og það kom alveg skýrt fram hver þeirra vilji var og það er verið að fylgja honum eftir hér í þessu máli.

Þetta hafa verið erfiðir tímar fyrir Grindvíkinga og ég held að við getum öll ímyndað okkur það. En núna er vorið að koma og þá verður kosið til sveitarstjórna, það verður kosið til bæjarstjórnar í Grindavík og verkefni þeirrar bæjarstjórnar verður risastórt, að leiða endurreisnina á Grindavík því að öll viljum við sjá Grindavík byggjast upp og verða þann blómlega og öfluga bæ sem hann var. Það mun taka tíma, það verður risastórt verkefni en þetta frumvarp er, þó að það sé lítið um sig, risastórt skref í þá áttina að allir þeir sem bjuggu í Grindavík þegar rýmingin var í nóvember 2023 hafi rétt á því að taka þátt í að segja sitt um uppbyggingu síns eigin sveitarfélags. Þetta er grundvallaratriði þegar kemur að því að endurreisa Grindavík með jákvæðum og góðum hætti, þannig að ég fagna mjög þessu frumvarpi og ég geri fastlega ráð fyrir því að allir þingmenn muni standa með ráðherranum og fylgja þessu frumvarpi í gegnum þingið hratt og örugglega þannig að hægt verði að hefja undirbúninginn að því flókna úrlausnarverkefni sem verður hjá þeim sem sjá um framkvæmd kosninganna, eins og kom hér fram í máli hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar áðan, sem þekkir þessi mál mjög vel eftir margra ára veru í kringum kosningaframkvæmdina.

Takk, hæstv. ráðherra, fyrir að koma með þetta. Ég geri ráð fyrir að málið fari til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og hvet nefndarmenn hennar til að vinna þetta hratt og örugglega þannig að sá mikli undirbúningur sem þarf að vera á þessu geti gengið vel fyrir sig þannig að framkvæmdin verði okkur til sóma og verði einn af fánunum sem við reisum upp því núna ætlum við að reisa Grindavík við. — Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.