kosningalög, sveitarstjórnarlög og lögheimili og aðsetur.
Herra forseti. Ég fann mig knúinn til að koma hér aðeins til að klára það sem ég hef um þetta mál að segja. Ég held að það sé víðtæk samstaða um að fara þessa leið. Ég hef ekki heyrt betur og ekki heyrt annað og mér heyrist líka samráð hafa verið víðtækt við gerð þessa frumvarps. Þetta er augljós leið, held ég, framkvæmanleg og góð. Ég tek undir orð hv. þm. Víðis Reynissonar um að við reynum að hraða ferð þessa frumvarps í gegnum þingið vegna þess að það er stutt til kosninga og það er mikilvægt að það sé tími til að kynna þessa nýju aðferð fyrir Grindvíkingum, bæði þeim sem eiga enn lögheimili í Grindavík og einnig þeim sem hugsanlega vilja nýta sinn kosningarrétt í Grindavík.
Ég tel mjög mikilvægt, herra forseti, að það fari fram góð kynning á þeim kostum sem standa Grindvíkingum til boða, nokkur þúsund Grindvíkingum sem hafa fært lögheimili sitt annað og þar af kosningarbærum mönnum, kannski hátt í 2.000 aðilum sem hugsanlega gætu tekið ákvörðun um að kjósa frekar í Grindavík en í núverandi lögheimilissveitarfélagi. Það er í fyllsta máta mjög eðlilegt vegna þess að eðli málsins samkvæmt hafa þessir aðilar, fólk sem hefur flutt frá Grindavík og er búið að setja sig niður annars staðar, ekki tekið endanlega ákvörðun í ljósi atburða hvort þeir búi áfram þar sem þeir eru í dag eða hvort þeir flytjist aftur til Grindavíkur. Það er því í fyllsta máta eðlilegt að gefa þessu fólki tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu Grindavíkur, sem vonandi er ekki langt að bíða að hefjist af fullum krafti og að þessum hörmungaratburðum sé vonandi að ljúka.
Ég styð þetta frumvarp og mín ábending, sem ég bendi bara aftur á, varðar kosningaathöfnina sjálfa. Það er mikilvægt að gata þeirra Grindvíkinga sem kjósa annars staðar á kjördag sé gerð greiðari. Hugsanlega þarf hæstv. ráðherra að athuga hvort heimild til utankjörfundaratkvæðagreiðslu verði rýmkuð örlítið á kjördag til að hafa opna utankjörfundaratkvæðagreiðslu í nágrenni Grindavíkur alla vega, þ.e. á Selfossi, Akranesi og hérna í kring þar sem fólk gæti þá hugsanlega kosið á kjördag, mætt á kjörstað utan kjörfundar og atkvæðinu væri síðan komið til Grindavíkur. Þetta er kannski ekki hægt á Ísafirði eða Akureyri en þá yrði alla vega upplýsingagjöfin hvað það varðar höfð greinargóð þannig að hún næði til allra.