framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur kærlega fyrir hennar orð. Hvað spurninguna varðar þá höfum við lagt alveg gríðarlega mikla áherslu á það að reyna að styrkja allt samstarf og þar með stöðu landanna þriggja í sem breiðustu samhengi og myndum vera, veit ég, tilbúin til að eiga nánara samstarf við Norðurlöndin. Eins og manni verður ljóst, miðað við stöðuna eins og hún er núna, er þetta ekki bara um pólitískt eða hugmyndafræðilegt mál. Staðan náttúrlega fer inn á öryggistilfinningu fólks og þetta verður gjarnan mikið tilfinningamál. Ég tel mjög brýnt að við höldum áfram að styrkja tengsl vestnorrænu landanna við Norðurlönd. Mér hefur fundist að þessi staða hafi t.d. frekar styrkt tengslin á milli Danmerkur og Grænlands heldur en sundrað. Ég er mjög tilbúinn að vera hluti af því að styrkja þetta samtal og samvinnu.