157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[17:31]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. nefndarformanni fyrir sína yfirferð og það er rétt sem kom fram í hennar máli að þetta mál er búið að vera mikið rætt í hv. velferðarnefnd og vægast sagt skiptar skoðanir, bæði þar og ekki síður hjá umsagnaraðilum sem við tökum mark á og tillit til. Mig langar aðeins í rauninni, á svipuðum nótum og var hérna í fyrra andsvari — hv. þingmaður nefnir réttilega að hér sé um pólitískt mál að ræða, sem það svo sannarlega er, en í ljósi alls og alls, í ljósi nýjustu tíðinda og spennu í efnahagslífinu: Er allt til þess vinnandi að ná fram pólitískum markmiðum einstakra ráðherra jafnvel, og þrátt fyrir að fjármálaráðuneytið og fjármálaráð hafi varað við þessari aðferðafræði? Er allt til þess vinnandi, bara sama hvað það kostar, bara til að ná þessum pólitísku markmiðum?