almannatryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar andsvar og samstarfið í nefndinni. Allt til þess vinnandi. Ég vil nú kannski ekki alveg orða það þannig. Það eru kannski einhver takmörk en já, það er mikið til þess vinnandi, sérstaklega þegar hugsað er til þessa hóps sem orðið hefur svona illilega eftir og gliðnunin orðin þetta mikil. Hér er verið að stöðva gliðnunina. Við erum ekki að tala um að henni verði snúið við í einu vetfangi. Þannig að það er til mikils að vinna að hugsa til þess að þessi hópur sé nú kominn nær því að vera bara eins og aðrir á markaði, að geta verið eins og ígildi við samningsborðið.
Varðandi fjármálaráðuneytið og það allt saman, ég vísa bara í minnisblöð fjármálaráðuneytisins sem eru á vef Alþingis, þá deilum við einfaldlega ekki þessum áhyggjum fjármálaráðuneytisins af málinu. Umfram allt ríkir sátt um þetta mál í ríkisstjórn, um að fara þessa leið. Það er bara ótrúlegt, eins og ég hef oft sagt með flest mál hér, að það sé þessi sátt sem er í þessari ríkisstjórn um þessi mál. Hér eru allir sammála um að þetta sé tímabært, og löngu tímabært, að nú skuli stíga þetta skref. Þannig að það ríkir fullkomin sátt um málið á ríkisstjórnarsáttaborðinu.
Síðan auðvitað vitum við ekki allt í framtíðinni. Ég er hvorki miðill né spákona, og enginn hérna, og það getur vel verið að þessir hlutir, verðbólgan og annað, muni reynast okkur þyngri en við vonumst til en að láta það bitna áfram á þessum viðkvæma hópi er bara eitthvað sem okkur hugnast ekki í þessu ríkisstjórnarsamstarfi.