157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[17:46]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Rósa Guðbjartsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Þetta er mjög pólitískt mál, það er nokkuð ljóst, eins og hér hefur komið fram og augljóst er. Það hefur komið fram í andsvörum og fyrirspurnum að þetta er eitt af þessum málum sem á að fara í gegn sama hvað; sama hvað það kostar og sama hvað hefur gerst frá því að til umræðu voru í nefndinni, það engar smá vendingar og óhagstæð tíðindi sem við okkur blasa í efnahagslífinu. Í stuttu máli snýst þetta einmitt um það og þau pólitísku viðhorf hvort réttlætanlegt sé að atvinnuleysisbætur verði hærri en laun í vissum störfum. Þetta er ein aðalbreytan í þeirri gagnrýni sem frumvarpið hefur verið að fá, og hvort verðbólguþrýstingur muni aukast við það að gera þessar breytingar.

Ég ætla fyrir hönd 1. minni hluta velferðarnefndar, sem er sú sem hér stendur og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson, frá Sjálfstæðisflokki líka, að fara hér yfir nefndarálit sem við höfum lagt fram eftir meðferð í hv. velferðarnefnd. Eins og komið hefur fram hér fyrr í dag styður 1. minni hluti markmið frumvarpsins. Það er að vinna gegn fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Í því sambandi vísar 1. minni hluti til þess að frá aldamótum hafa bætur almannatrygginga hækkað um tvöfalt á við vísitölu neysluverðs og umfram launaþróun. Þetta kemur fram í svari félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni um þróun bóta almannatrygginga og kom líka fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá þáverandi hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni um útreikning launaþróunar.

Það er hlutverk stjórnmálanna að taka ákvarðanir um breytingar á almannatryggingakerfinu sem taka mið af efnahagsaðstæðum og pólitískum áherslum hverju sinni. Það er sannarlega það sem við erum að ræða hérna í dag. Aftur á móti er sú leið sem lögð er til með frumvarpinu til að ná því markmiði því marki brennd að um 20% útgjalda ríkisins aukast sjálfkrafa á ári hverju án þess að tekjur fylgi eftir eða mat fari fram á heildaráhrifum. Verði frumvarpið að lögum verður aukin hætta á halla í ríkisrekstri og skuldasöfnun og er þannig gengið gegn meginmarkmiðum fjármálastefnu og laga um opinber fjármál. Verði frumvarpið að lögum verður auk þess líkast til dregið úr möguleikum stjórnvalda til að bregðast við framtíðarefnahagssveiflum. Það er nákvæmlega þetta sem við erum að takast á um. Þá er varfærni eitt af grunngildum laganna en í því felst að mikilvægt er að forðast ákvarðanir sem hafa ófyrirséðar afleiðingar rétt eins og mælt er fyrir um í frumvarpinu.

Fyrir nefndinni lýstu umsagnaraðilar yfir efasemdum, sérstaklega um 1. gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að ákvörðun um breytingar á greiðslum almannatrygginga taki mið af launavísitölu í stað launaþróunar eins og mælt er fyrir í núgildandi lögum um almannatryggingar. Fjöldi umsagnaraðila hafði einmitt áhyggjur af þessari þróun.

Í umsögn Samtaka atvinnulífsins kemur m.a. fram að þróun launavísitölu hafi sögulega verið töluvert umfram efnahagslegt svigrúm og þannig aukið verðbólguþrýsting og viðhaldið hærri meginvöxtum Seðlabanka Íslands en ef laun hefðu þróast með hóflegri hætti. Ef bætur almannatrygginga eru beintengdar við slíka þróun má vera ljóst að verið er að auka verðbólguþrýsting fremur en að draga úr honum. Í greinargerð með fyrri frumvarpsdrögum stóð einmitt þetta, að metið sé að verðbólguþrýstingur kunni að aukast með tengingu við launavísitölu þar sem hækkunin nær til svo fjölmenns hóps eða um og yfir 60.000 einstaklinga. Þessi breyting gengur augljóslega í berhögg við yfirlýst markmið nýrrar ríkisstjórnar um minnkun verðbólgu og vaxta og tekur ekkert tillit til þess ástands sem nú blasir við og hefur raungerst og versnað eftir að hv. velferðarnefnd var með þetta frumvarp í meðförum.

ASÍ leggst einnig gegn samþykkt frumvarpsins en í umsögn sambandsins kemur fram að þær breytingar sem lagðar eru til muni leiða til þess að greiðslur almannatrygginga muni dragast aftur úr lágtekjuhópum. Ljóst má vera að tvöföld trygging bóta með beintengingu við vísitölu stuðlar að ósjálfbærri útgjaldaaukningu og þróun bóta umfram þá tekjuaukningu sem launafólk fær í sinn hlut og er þróun bóta almannatrygginga umfram þróun launa til þess fallin að draga úr hvata til þátttöku á vinnumarkaði. Það finnst manni líka einmitt mjög umhugsunarvert, hvort það sé virkilega eitthvað sem við getum fallist á, verandi í samfélagi þar sem við erum að reyna að virkja sem flesta til þátttöku.

Efnahagssveiflur geta einmitt valdið því að tvöfalda tryggingin leiði til þess að bætur almannatrygginga hækki langt umfram kjör launafólks á ákveðnu tímabili án þess að til leiðréttingar komi á síðari tímabilum. Ef stuðst hefði verið við það fyrirkomulag sem lagt er til í frumvarpinu og fjárhæðum bóta ekki verið breytt að öðru leyti hefðu bætur almannatrygginga hækkað um 584% frá aldamótum á meðan laun hefðu hækkað um 518% og verðlag um 315%. Slík þróun bóta almannatrygginga umfram þróun launa er til þess fallin að draga úr hvata til þátttöku á vinnumarkaði og er í ósamræmi við markmið nýsamþykktra og umfangsmikilla breytinga á örorkukerfinu sem miða einmitt að því að stuðla að aukinni þátttöku fólks með skerta starfsgetu.

Fyrsti minni hluti tekur jafnframt undir erindi fjármála- og efnahagsráðherra og umsögn fjármálaráðs um málið þar sem fram kemur að ekki liggi fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum breytingarinnar. Það er sérstaklega alvarlegt þar sem hér er um grundvallarbreytingu á fjármögnun almannatryggingakerfisins að ræða sem ætla má að muni hafa veruleg áhrif á sjálfbærni opinberra fjármála til framtíðar.

Þá tekur 1. minni hluti undir sjónarmið fjármálaráðs um að líta verði til þess eðlismunar sem er á greiðslum almannatrygginga og launum. Laun eru endurgreiðsla fyrir verðmætasköpun á meðan hlutverk almannatrygginga er að tryggja framfærslu. Hér er því verið að tengja greiðslur almannatrygginga við vísitölu sem er óháð eðli almannatrygginga.

Þessu til viðbótar mælir frumvarpið fyrir um gólf fyrir hækkanir greiðslna almannatrygginga en ekkert slíkt gólf er fyrir launahækkanir fólks á vinnumarkaði. Eins og fjármálaráð bendir á hefur það á síðustu tveimur áratugum gerst fjórum sinnum að launavísitala hafi hækkað minna en sem nemur almennu verðlagi. Slík raunlaunahækkun er oft sársaukafull en nauðsynleg til að koma á jafnvægi í hagkerfinu. Fyrsti minni hluti tekur undir með fjármálaráði að varhugavert sé að setja slíkt gólf og hækkanir á greiðslur almannatrygginga, ekki síst þar sem víðtækar tengingar við vísitölu neysluverðs gera baráttu við verðbólgu enn erfiðari en ella. Hvort tveggja, þ.e. gólf á hækkanir og hækkanir umfram lægstu laun, býr til óeðlilega hvata fyrir vinnandi fólk á tímum þar sem bótagreiðslur hækka umfram laun á vinnumarkaði.

Fyrsti minni hluti áréttar að ábyrg hagstjórn er eitt helsta hlutverk stjórnvalda hverju sinni og leggur áherslu á mikilvægi vandaðrar lagasetningar er varðar efnahagsmál. Nauðsynlegt er að allar ákvarðanir stjórnvalda þeim tengdar séu teknar að vel ígrunduðu máli og eftir fullnægjandi mat á áhrifum. Það hefur ekki verið gert við undirbúning þessa frumvarps hvað 2. gr. þess varðar. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að áætluð útgjaldaaukning verði 3–4 milljarðar kr. á ári að meðaltali en hins vegar geti munurinn orðið mun meiri enda kunni fjárhæðir greiðslna að sveiflast mikið á milli ára verði þær bundnar við launavísitölu. Þá bendir allt til þess að frumvarpið muni valda verðbólguþrýstingi verði það að lögum, enda nær fyrirséð útgjaldahækkun til yfir 60.000 einstaklinga.

Að lokum telur fyrsti minni hluti kostnaðar- og áhrifamat frumvarpsins ófullnægjandi með öllu og í sama streng tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið í minnisblaði sínu, dagsettu 2. júní 2025. Þær breytingar sem felast í 2. gr. frumvarpsins gangi í berhögg við meginmarkmið laga um opinber fjármál. Þá liggja jafnframt ekki fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum frumvarpsins hvað 2. gr. varðar en í álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 kemur fram að í 2. gr. frumvarpsins sé kveðið á um grundvallarbreytingu á fjármögnun almannatryggingakerfisins og að ætla megi að hún geti haft veruleg áhrif á sjálfbærni opinberra fjármála til framtíðar. Það er þetta sem við erum ekki síst þessa dagana að benda á og vekur ugg.

Þá geldur fjármálaráð varhuga við því að tengja greiðslur almannatrygginga við vísitölu sem er óháð eðli almannatrygginga. Í því sambandi má t.d. nefna að stytting vinnuvikunnar leiðir til hækkunar launavísitölu. Jafnframt telur 1. minni hluti að ekki sé unnt að líta fram hjá því efnahagsástandi sem nú er uppi en verðbólga hefur aukist á síðastliðnum 12 mánuðum, þar af um 0,7 prósentustig milli mánaða í janúar 2026. Sú mikla aukning verðbólgu hefur hleypt langtímakjarasamningum sem gerðir voru 2024 í uppnám en ein af forsendum þeirra er að verðbólgan þurfi að vera undir 4,7% næsta haust. Í því ljósi er mikilvægt að grípa til aðgerða og leita allra leiða til að takmarka útgjaldaaukningu ríkissjóðs eftir fremsta megni.

Að mati 1. minni hluta er óábyrgt að samþykkja frumvarp sem felur í sér stórkostlega útgjaldaaukningu og brýtur gegn öllum grunngildum laga um opinber fjármál. Á það sérstaklega við, eins og hér hefur ítrekað komið fram, þegar verðbólga og atvinnuleysi er að aukast. Í ljósi varnaðarorða hagaðila og sérfræðinga sem hafa tjáð sig um frumvarpið er það mat 1. minni hluta að ótækt sé að frumvarpið verði að lögum óbreytt.

Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Undir þetta rita sú sem hér stendur, Rósa Guðbjartsdóttir, og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki.