almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Ég hefði kannski viljað fá aðeins betur fram — ég náði ekki alveg fyrri spurningunni — hvernig Samfylkingin í þessu tilviki lítur á umsögn sem kemur frá fjármálaráðuneytinu, sem er náttúrlega bara umsögn fjármálaráðherra sem gengur í berhögg við þetta sem hér er verið að leggja fram. Ég meina, í umsögn þeirra kemur fram að áhættuviðbótarkostnaður ríkissjóðs við það að fara þessa leiðina er um 4–5 milljarðar kr. á ári til að byrja með og 10–11 milljarðar kr. uppsafnað til ársins 2030. Það er þetta sem er verið að vara við núna og það er líka þetta sem er algerlega á skjön við það sem alla vega það sem ég trúi á að við eigum ekki að vera með kerfi (Forseti hringir.) sem getur reynst letjandi til þátttöku á vinnumarkaðnum. Það er fyrst og fremst það sem hefur skinið í gegn í meðferð málsins. (Forseti hringir.) Það væri gott að fá viðbrögð við þessu frá fjármálaráðherra, hvort það sé ekki alvarlegt (Forseti hringir.) að slíkt sé að koma eða hvaða augum þingmaðurinn lítur á þessa umsögn ráðuneytisins, hvort hún skipti engu máli.
(Forseti (BergÓ): Forseti minnir ræðumenn á að ræðutími er 1 mínúta í seinna skiptið.)