almannatryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. En ég velti fyrir mér, og mig langar að spyrja hv. þingmann, af hverju hv. þingmaður kemur hér í pontu og heldur á eldra minnisblaði frá fyrra þingi, frá 21. júní 2025, frá ráðuneytinu sem spurt var um álit sitt á þessu frumvarpi. Það kom annað minnisblað, þetta hér. Ég fæ bara að sýna hv. þingmanni það, dagsett 21.11. 2025, afskaplega lítið í takt við það sem búið er að tala um hérna að standi í þessum meintu minnisblöðum ráðuneytisins þar sem allt er ómögulegt. Ég vil bara fá að lesa lokakaflann í þessu seinna minnisblaði og gagnrýnin er nú ekki meiri en svo að það stendur hér, með leyfi forseta:
„Í mati á áhrifum gerir félags- og húsnæðismálaráðuneytið ráð fyrir að frumvarpið hafi í för með sér árlega hækkun á bilinu 4–5 ma.kr. í skattskyldri útgjaldaaukningu ríkissjóðs. Eins og fram hefur komið er þetta mat háð þróun launavísitölu, en talsverð óvissa er um þá þróun. Önnur afleidd áhrif eru einnig rakin í sömu greinargerð og tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið undir það mat.“
Við vitum öll að það er ákveðin óvissa en þessi gagnrýni sem hér hefur verið lýst að komi frá ráðuneytinu, jú, ég viðurkenni að fyrra minnisblaðið tók aðeins harðar á þessu en síðan kom nýtt þing, frumvarpinu var örlítið breytt og það var minnkað, það voru teknir úr því ákveðnir þættir og ég hvet hv. þingmann til að halda sig kannski frekar við þetta seinna minnisblað og vil líka sýna þjóðinni að það er ekki verið að rífa þetta frumvarp í tætlur eins og hér hefur verið gefið í skyn, að með þessu muni bókstaflega, með leyfi forseta, allt fara til fjandans vegna þessara 5 milljarða á ári sem við ætlum að nota til að draga úr kjaragliðnun (Forseti hringir.) þess hóps sem hefur verið látinn sitja eftir árum saman, elli- og örorkulífeyrisþega.