157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Rósa Guðbjartsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er reyndar ekki með neitt minnisblað í höndunum, ég er að vísa til þeirrar umræðu og þess sem átti sér stað í nefndinni. En ef afstaða ráðuneytisins hefur verið að breytast svona mikið á einhverjum örfáum vikum þá getum við líka farið í afstöðu fjármálaráðs og álitsgerð þess. Þar segir t.d., sem fjármálaráð hefur áhyggjur af, að það vanti greiningar vegna þessara áforma, t.d. hvað varðar hvata fólks á vinnumarkaði, samspil launa og verðlags o.s.frv. og undir þetta tók fjármálaráðuneytið í sínu fyrra minnisblaði. Ef það hefur breyst síðan þá — ég var ekki búin að bera þau saman og er ekki með þau undir höndum.

Þannig að mig langar að fá aðeins viðbrögð við þessu sem kemur fram bæði frá fjármálaráði og kom fram í umræðunni, að það vanti allar greiningar á áhrifum frumvarpsins og ekki síst hvað varðar þessa hvata til að taka þátt á vinnumarkaðnum.