almannatryggingar.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir seinna svar. Sá þingmaður sem hér stendur að veita andsvar vísar aftur í þetta seinna minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Það eru bara tvær línur um áhrif frumvarpsins á ríkissjóð og ekki talin ástæða til frekari umfjöllunar um það þannig að það er ekki mikið meira gert úr allri þeirri gagnrýni að það vanti mat á áhrifum.
Mig langar að nota þetta tækifæri líka til þess að minna á — ég hef svo lítinn tíma að ég kemst náttúrlega ekki í nema bara annað — að það séu raunverulega áhyggjur minni hlutans eða hv. þingmanns að hér sé verið að letja til þátttöku á vinnumarkaði. Mér finnst nokkuð mikið langt gengið að halda því fram. Þótt loksins sé farið að reyna að stöðva þessa kjaragliðnun, þessi hópur er kominn langt á eftir, að þá sé bein tenging við að verið sé að letja þennan hóp til þátttöku á vinnumarkaði. Ef ég væri í þessum hópi þá yrði ég, verð ég að segja, (Forseti hringir.) bara nokkuð móðguð við að heyra þetta. Þarna má svolítið gæta sín að vera ekki að tengja þetta tvennt saman eins og það sé bara einhver eðlislæg bein tenging þarna á milli. Það getur aldrei verið þannig.