157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[18:15]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Rósa Guðbjartsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og athugasemdina. Það er rétt að það er mismunandi gagnrýni sem kemur fram í umsögnum. Einmitt í umsögn frá Alþýðusambandi Íslands, ASÍ, er skýrt tekið fram að sambandið telur ekki þörf á lagabreytingu og leggur til að frumvarpið verði ekki samþykkt og er einmitt að vekja athygli á þessu. Þannig að þetta hefur mismunandi áhrif. Þarna er verið að benda á þessi áhrif sem þingmaðurinn fjallar um og annars staðar önnur áhrif, eins og hjá Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands sem hafa áhyggjur svipaðar þeim sem 1. minni hluti er að tefla hér fram, af auknum verðbólguþrýstingi, hærri vöxtum, ósjálfbærri útgjaldaaukningu ríkissjóðs og telja breytinguna veikja hvata til atvinnuþátttöku. Það er þetta sem við erum að enduróma hérna og erum að benda á í okkar nefndaráliti og frávísunartillögu, að málið hefur heldur ekki fengið það mat á áhrifum sem mál af þessari stærðargráðu hefði þurft að fá. Það er það sem við erum að koma sérstaklega á framfæri og sérstaklega benda á og í ljósi efnahagsástands ekki síst, að taka tillit til þessara sjónarmiða. Það eru mismunandi áhrif, mismunandi ástæður fyrir því að verið er að vara við þessu frumvarpi. Það er algerlega rétt hjá hv. þingmanni að Félag eldri borgara er hlynnt þessu og það er gott og vel. En það eru það miklir hagsmunir undir, það margir milljarðar að það ber (Forseti hringir.) að fara aftur og betur í gegnum þetta og gera t.d. mat á áhrifum áður en lengra er haldið eins og hefði átt að gera í svo stóru máli.