157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[18:21]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að leggja hér orð í belg um þetta mál sem varðar tengingu á bótum almannatryggingakerfisins við launavísitölu, til viðbótar við þær vangaveltur sem ég hafði við 1. umræðu málsins.

Málið hefur fengið ágæta umræðu í hv. velferðarnefnd og margar umsagnir borist auk þeirra umsagna sem bárust þegar málið var flutt á síðasta þingi og eiga enn þá við og gestir fengnir á fundinn. Það má í sjálfu sér skipta þessu í tvennt eins og hv. framsögumaður málsins kom hér inn á, umsagnirnar hafa kannski skipst í tvennt. Að sjálfsögðu voru þeir sem töluðu fyrir þeim hópum sem hér um ræðir og þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu jákvæðir gagnvart þessu. En ég held að mér sé óhætt að fullyrða að allir aðrir sem komu að málinu, m.a. aðilar vinnumarkaðarins, bæði talsmenn verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda og jafnvel fjármálaráðuneytið, hafi miklar efasemdir um þetta mál. Sjálf hef ég efasemdir og hafði efasemdir um það áður en það var lagt fram, þessi áform eða þessar hugmyndir um að sjálfvirknivæða ákveðna tegund af ríkisútgjöldum.

Þetta mál lýtur að því að festa ríkisútgjöld og hækkun ríkisútgjalda með tilteknum hætti sem hér er kveðið nánar á um. Ég hef tilhneigingu til þess að leggjast gegn slíkum málum, ekki bara þessu máli. Ef hugmynd kæmi t.d. um það að framlög úr ríkissjóði til Háskóla Íslands eða til grunnskóla eða til framhaldsskólanna eða til heilsugæslunnar eða hver önnur ríkisútgjöld sem við höfum vegna nauðsynjar — hafi menn uppi áform um að einhvern veginn að festa slíkar hækkanir og framlög með hækkunum við einhverjar vísitölur eða eitthvað annað þá myndi ég leggjast líka gegn því. Ég vil nefna það hér, virðulegur forseti, að þetta hefur ekkert með það að gera sérstaklega að þetta sé almannatryggingakerfið, af því að ég, eins og fleiri, get fallist á markmiðið með frumvarpinu, sem er að vinna gegn fátækt. Að sjálfsögðu held ég að allir þingmenn og allir Íslendingar fallist á að við þurfum að vinna gegn fátækt. Ég er hins vegar ekki sannfærð um að það að binda bætur almannatryggingakerfisins við launavísitölu sé besta aðferðin til að vinna gegn fátækt. Ég er ekki einu sinni sannfærð um að slík aðgerð vinni gegn fátækt. Ég hef bara jafnvel efasemdir um að það að hækka bætur með einhverjum tilteknum hætti vinni sérstaklega gegn fátækt. Ég held að fátækt sé miklu flóknara fyrirbæri og rætur fátæktar liggi miklu víðar heldur en í fjárhæð bóta. Menn eru jafnvel fátækir hér sem ekki eru á neinum bótum. Hér er láglaunafólk sem festist í láglaunastörfum, kannski jafnvel alla sína starfsævi, sem glímir við fátækt. Það er fólk á vinnumarkaði. Ég held að aðgerðir til að berjast gegn fátækt væru markvissari og almennari með öðrum hætti og öðrum aðgerðum heldur en þeim sem hér er kveðið á um.

Ég held, virðulegur forseti, ef ég á að segja eins og er, að þetta mál sé eitt af þessum meinlokumálum Flokks fólksins sem situr í ríkisstjórn núna og, eins og ég hef nefnt áður í þessum stól, virðist hafa hreðjatak á samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórn og þetta mál sé því marki brennt að menn séu bara með þetta á heilanum. Eins og við þekkjum var þetta mál lagt fram af að ég hygg formanni Flokks fólksins þegar hún sat í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili sem venjulegt þingmannamál og er eitt af þessum málum sem hv. þingmenn hér, með fullri virðingu fyrir þeim og þeirra pólitísku dagskrá á hverjum tíma, henda fram sem lið í sinni pólitísku dagskrá á hverjum tíma. Allt í lagi með það svo sem, sum mál sem lögð eru fram hér af þingmönnum, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu á hverjum tíma, eru að mínu mati algerlega galin og algjörlega óraunhæft að þau nái fram að ganga og kannski eru þau mörg hver lögð fram einmitt með þeirri vissu að þau nái ekki fram að ganga. Og ég held, virðulegur forseti, að þetta sé bara eitt af þessum málum, að menn hafi, án þess að ég segi að þetta mál sé galið — það eru mörg önnur mál sem eru galnari en þetta mál, ég ætla ekki að segja það, ég er ekki að segja að þetta sé óframkvæmanlegt mál en þetta er ekki skynsamlegt mál. Það er lítil skynsemi í málinu þótt menn trúi því og ég get alveg ímyndað mér að einhverjir hv. þingmenn trúi því raunverulega að nái þetta mál fram að ganga þá verði það einhver lyftistöng í baráttunni gegn fátækt eða einhver aðstoð við þá sem þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu. Ég held að það sé algjör misskilningur.

En fyrst og fremst leggst ég gegn þessu máli vegna þess að hér er verið að festa ákveðin ríkisútgjöld við einhverjar vísitölur sem ég held að menn geti ekki einu sinni almennilega skilgreint hvernig eru fundnar út, sumar þessara launavísitölutalna. Það er nú bara þannig. Það er líka í fyrsta lagi munur á launum og bótum. Menn verða að horfast í augu við það. Menn verða að viðurkenna að það er munur á launum og bótum. Laun eru endurgjald fyrir eitthvert vinnuframlag en bótum er ætlað að renna stoðum undir framfærslu þess sem bæturnar þiggur. Það er ekki stigsmunur á þessu, það er hreinlega eðlismunur á launum og bótum. Ef menn viðurkenna — og ég held að allir hv. þingmenn hljóti að viðurkenna þetta — að það sé þessi eðlismunur á launum og bótum þá er það þeim mun galnara ef menn ætla að vaða áfram með svona mál þar sem það virðist ekki vera gerður þessi greinarmunur á launum og bótum og horft fram hjá þessum eðlismun sem allir hljóta samt að viðurkenna.

Þannig hefur það verið að þróun launavísitölu hefur verið hérna á Íslandi umfram kjarasamningsbundnar launahækkanir, svona alla jafna. Það er raunverulegt vandamál á Íslandi að launavísitalan hækkar með þessum hætti og hefur hækkað svona umfram þessi kjarasamningsbundnu laun. Einnig hefur launaþróun verið að jafnaði umfram efnahagslegt svigrúm hér á Íslandi. Ég greindi ekki betur en að hæstv. forsætisráðherra hafi í gær eða dag eða síðustu daga einmitt verið að benda á þetta sem ástæðu verðbólgunnar, þessarar klístruðu verðbólgu sem við höfum hér þessa dagana og þessi dægrin og verður næstu misserin, verðbólgu sem virðist einhvern veginn ekki ætla að geta farið niður. Hæstv. forsætisráðherra benti einmitt á kjarasamninga og launasamninga og var einmitt að ýja að því að menn þyrftu að líta sér nær í þessum efnum og var þá væntanlega með einhverja sneið til aðila vinnumarkaðarins og jafnvel, heyrðist mér, til heimilanna og einstaklinga hér hvað varðar eyðslu og annað. Það er hægt að gagnrýna þann málflutning að einhverju leyti en ég held að allir sem hafa fylgst með efnahagsmálum á Íslandi hljóti að viðurkenna að þetta hefur verið stórt og kannski mesta áskorunin í íslensku efnahagslífi, þessi launaþróun. Höfrungahlaup var það einhvern tímann kallað þegar ég var barn og hlustaði á fréttir. Það var endalaust höfrungahlaup og þetta er vandinn sem við er að etja. Þess vegna er það afleitt ef menn ætla að smyrja þessum vanda, sem ég tel vera vandamál, líka inn í almannatryggingakerfið. Út á það gengur þetta frumvarp.

Þess vegna fannst mér líka áhugavert að taka á móti aðilum vinnumarkaðarins, ASÍ annars vegar, Samtökum atvinnulífsins hins vegar og Viðskiptaráði Íslands og fleirum og alls kyns einhverjum hugveitum líka þar sem var samhljómur í þessari afstöðu um þetta mál, að þetta væri ekki einhvern veginn til velfarnaðar fallið og á það var auðvitað bent að í núgildandi lögum um almannatryggingar er kveðið á um í 62. gr. að bætur almannatryggingakerfisins skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni en þar skuli taka mið af launaþróun og bætur skuli þó aldrei hækka minna en vísitala neysluverðs. Þetta er kannski mergurinn málsins þegar kemur að bótum og ákvörðun bóta. Með vísan til þess sem ég sagði hér áðan, að bótum er ætlað að vera framfærsla þess sem hlýtur bæturnar, ekki endurgjald fyrir vinnu, þá liggur fyrir í lögum um almannatryggingar, með þessu ákvæði sem ég var að vísa hér til, að þróun verðlags myndar þannig grunninn fyrir þróun bóta sem ættu þá að nægja til framfærslu. Þetta er mergurinn málsins. Það er í dag og meira að segja er í dag í lögum, samkvæmt þessu ákvæði, líka heimilt að hækka bætur til samræmis við launavísitölu. Ef Alþingi myndi ákveða það eða hugnaðist það í eitthvert skiptið að miða við launavísitölu þá er það alveg heimilt. Það yrði hins vegar afleit ákvörðun, það er óskynsamlegt. Það er óskynsamlegt að líta til launavísitölu. Það er þess vegna sem menn hafa litið til verðlagsvísitölu af því að það er líka kveðið á um að það megi ekki hækka bæturnar minna en hækkun verðlagsvísitölu af því að bæturnar eru framfærslugrunnur, ekki endurgjald fyrir vinnu.

Hitt er síðan annað mál að í umsögnum sem hafa borist um málið og í umræðum í nefndinni hefur komið fram að bætur almannatryggingakerfisins hafa í raun, ef litið er aftur í tímann, hækkað meira en launaþróunin eða launavísitalan. Það er staðan. Þess vegna hef ég spurt hér, kannski varpað því fram, og kannski er það hugmyndin hjá ríkisstjórninni að reyna að stemma stigu við hækkun bóta einhvern veginn með því að festa það við launavísitölu. Það hækkar þá ekki meira en það. Bæturnar hækka þá ekki meira en launavísitalan. Á það var reyndar bent líka í umsögn, frá ASÍ minnir mig, að launavísitölubindingin gæti leitt til þess að bætur myndu dragast aftur úr lágtekjuhópum. Það kom fram í umsögn aðila vinnumarkaðarins. Það tel ég til umhugsunar fyrir þingið og sérstaklega þá þingmenn sem telja sig boðbera hagsmuna, sérstaklega þeirra sem þiggja þessar bætur.

Hins vegar vil ég víkja að athugasemdum fjármálaráðuneytisins í þessu, bæði á síðasta þingi þegar málið var þá flutt, þ.e. á þessu kjörtímabili, á síðasta þingi, lagði fjármálaráðuneytið fram margra blaðsíðna athugasemd, og mig minnir — hvort það var endurtekið eða nýtt svipað minnisblað á þessu þingi en þar kom fram að uppsafnaður kostnaður, nái þetta fram að ganga, yrði 10–11 milljarðar undir lok þess tímabils sem um ræddi. Ég verð að gera athugasemdir við málflutning hv. framsögumanns málsins sem sagði, held ég, bæði í sinni ræðu og í andsvörum, a.m.k. við einhverja þingmenn, að þetta væri nú ekki nema 5 milljarða kostnaður. En þetta er 5 milljarða árlegur kostnaður um alla eilífð ef ekkert yrði að gert síðar. En við erum að tala hérna í styttra tímabili, þetta er 5 milljarða kr. kostnaður árlega. Það er mjög mikil hækkun ríkisútgjalda sem í því felst og hvaðan á þessi peningur að koma? Heldur t.d. hv. framsögumaður þessa máls, eða þeir sem flytja þetta mál og tala fyrir því, að þessi peningur komi frá einhverjum öðrum en þeim sem þiggja bætur? Hann kemur auðvitað frá öllum, líka þeim sem þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu. Þessi peningur verður sóttur eitthvert. Það má velta því fyrir sér hvort hann verði sóttur t.d. í einhverjar aðgerðir sem miða kannski raunverulega að því að draga úr fátækt. Þetta er óskynsamleg ráðstöfun á almannafé, af því að þetta er auðvitað almannafé, þetta er fé skattgreiðenda og skattgreiðendur eru allir hér í landi, líka jafnvel þeir sem þiggja bætur. Menn þurfa að svara því hvernig menn ætli að mæta þessu. Þá er rétt að hafa í huga að fjármálaráðuneytið benti líka á það að þetta frumvarp væri andstætt markmiðum fjármálastefnu og laga um opinber fjármál.

Svo er kannski hitt, fyrir þá sem ekki vilja leggja það á sig að leggja sjálfstætt mat sjálfir á hlutina og taka afstöðu til mála — það eru auðvitað til margir slíkir sem trúa engu nema það komi fram í excel-skjölum eða greiningum eða sviðsmyndum. Ég þarf svo sem kannski enga greiningu til að geta tekið þá afstöðu til þess að það sé ekki skynsamlegt að koma á sjálfvirkri aukningu ríkisútgjalda óháð stöðu ríkisfjármála eins og þetta frumvarp kveður á um. Ég er, eins og ég sagði í upphafi máls míns, bara ósammála slíkri nálgun og skiptir þá engu hvort það er almannatryggingakerfið eða menntamálin eða heilbrigðiskerfið. En fyrir þá sem trúa engu nema excel-skjölum og greiningum og sviðsmyndum þá er rétt að draga það fram líka að fjármálaráðuneytið tók í umsögn sinni undir með fjármálaráði að það vanti greiningu á áhrifum breytinganna. Það hefði kannski verið eðlilegt að kalla eftir því við fjármálaráðuneytið en það er auðvitað svolítið ankannalegt að svona stór ríkisútgjöld eða kerfisþáttur ríkisútgjaldanna eins og greiðslur almannatryggingakerfisins og þetta frumvarp kveður á um liggi hjá hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra og því ráðuneyti, ef það er ekki búið að taka það af honum nú þegar eins og önnur mál þar sem fjaðrirnar hafa verið reittar af nýorðnum hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra frá fyrsta degi en hann fær kannski að vera með þennan málaflokk aðeins lengur. En það hefði þá verið tilefni til þess, miðað við þessa umsögn frá fjármálaráðuneytinu, að óska eftir nánari greiningu á þessu, ekki bara greiningu þessa árs eða næsta heldur til næstu 30 ára vegna þess að ríkisfjármálin eru undir í 30 ár í senn, minnir mig, ef ekki lengur, þ.e. stóra myndin og fjármálaráðuneytið gerir greiningar til lengri tíma heldur en bara tímabils fjármálaáætlunar, hvað þá kjörtímabils einnar ríkisstjórnar. Menn þurfa að sjá aðeins lengra fram í tímann þegar kemur að svona stórum útgjaldaliðum í ríkisfjármálunum og ég hefði talið að þetta mál þyldi alveg slíka greiningu.

Í lokin er hins vegar rétt kannski að taka það fram eða minna hv. þingmenn á að það eru smá válynd veður í ríkisfjármálunum og efnahagslífinu þessar vikurnar. Menn hafa ekki séð fram úr afleiðingum skattahækkana sem gengu í gegn um áramótin og menn eru orðnir vonlitlir um lækkun vaxta næsta vaxtaákvörðunardag og jafnvel þarnæsta líka og í þessu ljósi tel ég einboðið að þetta mál verði kallað aftur inn til hv. velferðarnefndar til þess að ræða þetta mál í samhengi við efnahagsstöðuna, efnahagsmálin í dag og næstu misserin og tel ekki vanþörf á að ræða það og óska hér með eftir því að málið fari aftur til nefndar á milli 2. og 3. umræðu.