almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Auðvitað kaus hv. þingmaður að heyra það að sú sem hér stendur hafi nefnt að hún vilji ekki styðja við bakið á fólki á Íslandi og fólki sem þiggur bætur úr almannatryggingakerfinu. Svona er þessi umræða alltaf. Hafi menn athugasemdir við einhverja útfærslu á svona dellufrumvarpi eins og því sem hér liggur fyrir er því slengt fram að menn vilji ekki standa við bakið á fólki sem þiggur bætur úr almannatryggingakerfinu. Þetta er auðvitað ekki boðlegur málflutningur. Þetta er engan veginn boðlegur málflutningur. Ég stend við bakið á og hef talað fyrir hagsmunum íbúa hér á landi, eins og hv. þingmaður vill kalla Íslendinga, íbúa hér á landi, skattgreiðendur í þessu landi, jafnvel lengur en hv. þingmaður hefur gert. Og hér er um að ræða útgjöld sem allir íbúar á Íslandi þurfa að bera, allir Íslendingar þurfa að bera. Þessir peningar verða teknir af þeim. Þeir verða teknir af fólki sem þiggur bætur, þeir verða teknir af fólki sem þarf að leita aðstoðar í skólakerfinu fyrir börnin sín, sérstakrar heilbrigðisþjónustu. Þeir verða teknir af þeim, þeir verða teknir úr þjónustu annars staðar. Það er það sem ég er að benda á. Hv. þingmaður kom reyndar með ágætisábendingu, það er launavísitalan, og hann er mér sammála um að launavísitalan þurfi einhverja endurskoðun. Hún þurfi endurskoðun og hann nefndi að það mætti alveg skoða hvernig hún væri reiknuð, hvernig Hagstofan reiknar launavísitöluna. Launavísitalan hefur hækkað langt umfram kjarasamningsbundnar launahækkanir. Þannig hefur hún hækkað. Og það skyldi þó ekki vera þannig að þessu máli, nái það fram að ganga, verði skítreddað þannig að útreikningi launavísitölu verði bara breytt?
Ríkisstjórnin hefur það í hendi sér, eða Hagstofan, að breyta þessum útreikningi á launavísitölunni. Það kann að vera að þessu máli verði þannig bjargað. En það liggur fyrir að bætur eru til þess að tryggja framfærslu fólks.