157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[18:54]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil taka það fram að ég nefndi það sérstaklega að það væri kannski ekki rétt að segja galið um þetta eins og það eru stundum galin frumvörp sem eru lögð hérna fram. Ég tók það sérstaklega fram að þetta væri kannski ekki galið mál þótt ég væri ósammála því og teldi það ekki skynsamlegt. Það væri ekki galið í þeim skilningi sem mörg önnur mál sem eru lögð fram. Hins vegar stend ég við að þetta er einhvers konar meinlokumál Flokks fólksins. Þótt hv. þm. Samfylkingarinnar hafi komið hér upp og nefnt að þetta væri baráttumál Samfylkingarinnar líka þá er það eitthvert nýtt, því að ég kannast ekki við að það hafi verið sérstakt baráttumál Samfylkingarinnar að binda almannatryggingar við launavísitölu. En gott og vel, ég ætla að skipta mér af stefnumálum annarra flokka. Málið hefur hins vegar yfirbragð meinlokumáls í þessu sambandi.

Ég vil líka nefna það — ég greindi nú enga spurningu hjá hv. þingmanni en hún kom inn á ýmis atriði — að þetta mál er sett í þann búning eins og það eigi að berjast gegn fátækt. Það sem ég nefndi er að í fyrsta lagi eru ekki allir sem þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu fátækir. Það er eitt. Hins vegar er það líka þannig að það er fullt af fólki sem er fátækt eða er að berjast við fátækt, ef við myndum nota einhverja mælikvarða á fátækt. Það er nú umdeilanlegt líka hvaða mælikvarða á að nota á fátækt en ég held að það geti allir sammælst um að það eru sumir sem ekki þiggja bætur almannatryggingakerfisins og eru á vinnumarkaði sem berjast í bökkum, ef við getum sagt það svo, kannski er hreinlega fátækt. Þetta frumvarp hjálpar því fólki ekki neitt. Þetta frumvarp jafnvel kann að auka á fátækt þess fólks með hækkun skatta í framtíðinni. Hér voru skattar hækkaðir á heimilin í landinu núna um síðustu áramót, svo um munar. Venjulegt fólk og venjuleg heimili og það er til þess að fjármagna eitthvað.