almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Nei, ég ætla svo sannarlega ekkert að spá fyrir um hvað gerist nái þetta frumvarp fram að ganga, ekki frekar en ég get spáð fyrir um hvernig þróunin verður nái það ekki fram að ganga. Ég bara bendi á eitt í þessu sambandi, það sem mér finnst skipta mestu máli í þessu. Hér er verið að festa tiltekin ríkisútgjöld við einhverja utanaðkomandi þróun sem ríkisstjórnin og stjórnvöld hafa ekki tök á. Það er verið að binda ríkisútgjöld, meðferð skattfjár, við ytri þætti sem stjórnvöld hafa ekki áhrif á, þ.e. einhverja launavísitölu sem stjórnvöld geta ekki haft áhrif á. Slík sjálfvirknivæðing ríkisútgjalda er afar óskynsamleg. Hún er afar óskynsamleg og þekkist ekki í neinu öðru tilliti, ekki einu sinni varðandi fjármögnun skurðstofa á Landspítalanum eða grunnskólanna, þannig að þetta er afar óskynsamleg þróun.
Vilji menn berjast gegn fátækt, líka þeirra sem þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu, þá hefði verið upplagt fyrir hv. þingmann og ríkisstjórnina að hætta við skattahækkunina sem varð um áramótin, hætta við tvöföldun kolefnisgjalds sem bifreiðaeigendur og heimilin í landinu bera, hætta við að hækka vörugjald á bifreiðum úr 60% í 70%, þannig að nýr lítill heimilisbíll hafi hækkað um 1 til 2 millj. kr. Þetta eru aðgerðir sem skila sér til þessa fólks og hæstv. ríkisstjórn og hv. þingmaður gætu bætt um betur, því að skattahækkunin er farin, hún er komin til aðgerða — menn gætu farið að beita sér fyrir því að draga þessar skattahækkanir til baka (Forseti hringir.) og bæta um betur og lækka þessi gjöld sem leggjast t.d. á þarfasta þjóninn sem allir hér á landinu, ríkir og fátækir, þurfa að reiða sig á, (Forseti hringir.) sem er fjármögnun og rekstur á bíl, vegna þess að það er þetta, sú hækkun sem varð hérna um áramótin, sem mun gera fólk fátækara en ella.