157. löggjafarþing — 66. fundur,  3. feb. 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[19:01]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka nefndarmönnum fyrir ágætt samstarf í nefndinni um þetta mál sem er umdeilt, eins og hefur svo sem komið fram í umræðum hér í þingsal og birtist raunar einnig í gestakomum fyrir nefndinni og í umsögnum aðila. Eins og áður hefur komið fram í máli mínu hygg ég að við séum öll sammála um það markmið sem að er stefnt hér; að útrýma fátækt og lyfta greiðslum almannatryggingakerfisins til fátækasta hópsins, fólksins sem þarf mest á þessu að halda. Það hefur verið gert í gegnum tíðina án þess að grípa hafi þurft til þeirra sjálfstýringar sem hér um ræðir. Í því sambandi nefni ég að frá árinu 2000 hafa þessar greiðslur hækkað tvöfalt á við verklag frá árinu 2000, 18% umfram hækkun launa. Það hefur verið stefna stjórnvalda þess tíma. Þannig hafa stjórnvöld nýtt sér þær heimildir og þau ákvæði í lögum um almannatryggingar sem nú þegar eru í lögunum; þau hafa nýtt sér þetta svigrúm til mats sem umboðsmaður Alþingis hefur mælt fyrir og getið um í sínum álitum. Þannig hafa stjórnvöld farið með þetta vald. Þá hlýtur auðvitað að vakna spurningin fyrst: Bíddu, af hverju, með þennan meiri hluta sem svona digurbarkalega segist ætla að styðja við þennan hóp, þarf þá að fara að lögfesta ákvæði sem þetta? Treystir Flokkur fólksins ekki ríkisstjórninni til að standa á bak við þennan hóp án þess að lagaskylda eins og þessi sem hér um ræðir sé fest í lögin?

Hæstv. forsætisráðherra sagði í fjölmiðlum í gær, með leyfi forseta: „Við verðum bara einhvern veginn að rjúfa þennan vítahring.“ Forsætisráðherra fór í helstu fjölmiðla landsins og fjallaði um verðbólguna sem vofir nú enn og aftur yfir íslensku efnahagslífi. „Við verðum bara einhvern veginn að rjúfa þennan vítahring.“ Hún sagði meira en það. Hún gat þess sérstaklega að við þyrfum að passa upp á launaþróun, verðlagsþróun og ríkishallann. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra í gær. Því kom mér það mjög verulega á óvart að ríkisstjórnin þar sem í forsvari eru tveir hagfræðingar, annars vegar hæstv. forsætisráðherra og hins vegar fjármálaráðherra, skyldi í ljósi þessarar verðbólgu sem er aftur að herja á okkur halda áfram með þetta mál og taka það til 2. umræðu í dag, daginn eftir að forsætisráðherra sagði að við þyrftum að passa sérstaklega upp á launaþróun, verðlagsþróun og ríkishallann vegna þess að þetta frumvarp gengur gróflega gegn þessum þremur þáttum.

Það eru ekki eingöngu ég og við í minni hlutanum sem höfum verið að benda á hættuna sem liggur að baki þessu frumvarpi heldur einnig stærstu aðilar á íslenskum vinnumarkaði, Samtök atvinnulífsins og hreinlega ASÍ sem nefndi það sérstaklega í sinni umsögn að þetta frumvarp, þessi leið, þjóni ekki markmiðinu. Það er ekki eingöngu minni hlutinn, Samtök atvinnulífsins og ASÍ, heldur er það líka fjármálaráðuneytið sjálft. Það hefur ritað minnisblöð um málið. Það var villandi, það var í senn — já, framsögumaður málsins er ekki hérna í þingsal akkúrat þessa stundina en minnisblöðin svo sem tala sínu máli og þar segir fjármála- og efnahagsráðuneytið, með leyfi forseta:

„Tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu getur leitt til sjálfvirkrar aukningar útgjalda, óháð stöðu ríkisfjármálanna. Það getur dregið úr möguleikum stjórnvalda til að forgangsraða fjármunum til annarra verkefna og getur stangast á við markmið um sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma þar sem framtíðarútgjöld aukast sjálfkrafa án þess að tekjur fylgi eftir eða mat fari fram á heildaráhrifum.“ — Þetta er kjarni málsins. — „Slík þróun getur aukið hættu á halla- og skuldasöfnun sem er andstætt meginmarkmiði um fjármálastefnu og laga um opinber fjármál. […] Útgjaldahækkanir ættu því að byggjast á mati á stöðu ríkisfjármálanna hverju sinni og vera reglulega endurmetnar með möguleika á leiðréttingu ef forsendur breytast.“

Svona hefur þetta verið undanfarin ár en þetta frumvarp miðar sem sagt að því að breyta þessu. Þetta er minnisblað ráðuneytisins frá 2. janúar 2025. Þar kemur einnig fram að miðað við forsendur fjárlaganna geti þetta verið 3–4 milljarðar hærri á árinu 2025 og 10–11 milljarðar undir lok tímabils fjármálaáætlunar. Þetta kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins frá júní 2025. Það er rangt sem kom fram í máli framsögumanns málsins, talsmanns meiri hlutans hér í þinginu í þessu máli, að þetta minnisblað eigi einhvern veginn ekki lengur við því að ráðuneytið hafi skilað öðru minnisblaði í nóvember 2025 og við hér sem erum að fjalla um þessi mál eigum eingöngu að líta til þess. Mátti skilja af framsögumanni málsins að fjármálaráðuneytið hafi jafnvel skipt um skoðun. Ég átta mig ekki á þessum málflutningi. Ef það er einhver vafi hér í þingsal, ég tala nú ekki um hjá meiri hlutanum, um það hver afstaða ráðuneytisins er, að ráðuneytið hafi vikið frá sinni fyrri umfjöllun sem varaði sérstaklega við þessu frumvarpi sem hér um ræðir, þá er full ástæða til að taka það aftur inn í nefndina á milli umræðna og fá þá fulltrúa ráðuneytisins á fund nefndarinnar eða bara ráðherrann sjálfan, það væri eðlilegast, til að fara yfir þessi mál. Það er ástæða númer eitt.

Ástæða númer tvö er þessi verðbólga sem ég ræddi hér um í upphafi máls míns; hvort það sé hyggilegt að fara í þessa vegferð, lögfesta þessa sjálfstýringu, þessa tvöföldu tryggingu, akkúrat á þessum tímamótum sem við stöndum á þegar forsætisráðherrann er að segja að við þurfum að gæta okkur á þessu höfrungahlaupi á vinnumarkaði, vera ekki að semja um launahækkanir sem efnahagurinn rísi ekki undir vegna þess að þær leiða eingöngu til aukinnar verðbólgu, og færa það svo bara átómatískt inn í almannatryggingakerfið. Það er galið. En til að taka af allan vafa um það hvernig ég í það minnsta les afstöðu ráðuneytisins þá getur það þess sérstaklega að engin efnisleg breyting hafi orðið á frumvarpinu hvað þennan þátt varðar. Í fyrra frumvarpinu voru hugmyndir um að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar og breytingar hvað aldursviðbótina varðar en þessi þáttur er nákvæmlega sá sami og kemur raunar fram í minnisblaði ráðuneytisins. Hér er um sama hlutinn að ræða eins og segir í seinna minnisblaðinu sjálfu, með leyfi forseta, að frumvarpið hafi „ekki tekið efnislegum breytingum og telur fjármála- og efnahagsráðuneytið ekki ástæðu til frekari umfjöllunar um áhrif frumvarpsins á ríkissjóð“. Ég skil þetta ekki öðruvísi en að fyrri varúðarorð ráðuneytisins eigi fyllilega við um það frumvarp sem hér er til umfjöllunar. Meiri hlutinn virðist einhvern veginn líta málið öðrum augum, í það minnsta hv. framsögumaður málsins, og því er full ástæða til að taka málið aftur til umræðu í nefndinni, þó að það sé ekki bara til þess að fá þetta á hreint.

Það sem er athyglisvert, og birtist svo sem í þessu seinna minnisblaði og einnig þegar fulltrúar fjármálaráðuneytisins komu á fund nefndarinnar, er að helstu rökin fyrir því að lögfesta þessa breytingu eru einfaldlega stjórnarsáttmáli eða stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar. Það er alveg merkilegt fyrir okkur sem í minni hlutanum sitjum að fylgjast með því hvernig Flokkur fólksins hefur fengið eiginlega öll sín stefnumál í gegn bara hér á fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar. Meira að segja á tímum eins og þessum þegar verðbólgan vofir yfir okkur getur meiri hlutinn ekki annað en borið þetta mál á torg og reynt að koma því í gegn. En þetta eru sem sagt afstaða og varúðarorð fjármálaráðuneytisins sjálfs.

Það er ekki eingöngu fjármálaráðuneytið sem hefur varað við þessu frumvarpi heldur einnig fjármálaráð í áliti sínu. Þar er þess getið, sem er auðvitað kjarnaatriði í málinu, að það sé eðlismunur á greiðslum almannatrygginga og launum. Laun eru endurgreiðsla fyrir verðmætasköpun á meðan greiðslum úr almannatryggingakerfinu er ætlað að tryggja framfærslu. Hér er því verið að tengja greiðslur almannatrygginga við vísitölu sem er óháð eðli almannatrygginganna. Þá kemur einnig fram hér í umsögn fjármálaráðs að launavísitala hafi yfirleitt hækkað töluvert umfram kjarasamningsbundnar hækkanir launa. Launavísitalan hefur því að jafnaði tilhneigingu til að hækka umfram lægstu laun. Þess er einnig getið að það sé ekkert gólf fyrir launahækkanir fólks á vinnumarkaði sambærilegt við það sem hér er lagt til. Það er þessi tvöfalda trygging sem er svo hættuleg. En það sem kannski skiptir mestu máli í þessu er einmitt, eins og kemur hér fram, með leyfi forseta:

„Fjármálaráð telur það varhugavert að setja slíkt gólf á hækkanir á greiðslum almannatrygginga, ekki síst þar sem víðtækar tengingar við vísitölu neysluverðs gera baráttu við verðbólgu enn erfiðari en ella.“

Þetta kemur fram í áliti fjármálaráðs. Hvernig getur staðið á því að við séum hér í 2. umræðu um þetta mál að ræða nákvæmlega svona verðtryggingu bóta, þ.e. gólfið í þessu tilfelli, þegar bara í gær var hæstv. forsætisráðherra að tala akkúrat í hina áttina? Allt sætir þetta mikilli furðu. Í baráttunni við að ná verðbólgunni niður er mikilvægt að lækka þetta hlutfall og tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu að viðbættu þessu gólfi vinnur gegn þessum markmiðum.

En vandamálið er kannski tvíþætt. Í fyrsta lagi er það auðvitað kostnaðurinn sem fylgir þessu kerfi en hins vegar þessi veruleiki þar sem er verið að lögfesta sjálfvirkan útgjaldavöxt í efnahagssamdrætti. Eins og segir í frumvarpinu mun breytingin „gagnast öllum sem fá greiðslur frá almannatryggingum og tryggja þeim að jafnaði meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um“. Þetta þýðir að kjör vinnandi fólks, sem stendur undir bótakerfinu með skattgreiðslum sínum, munu smám saman rýrna í samanburði við þá sem reiða sig á vinnu þeirra sér til framfærslu. Það hefur gerst í það minnsta fjórum sinnum að launavísitalan hafi hækkað minna en almennt verðlag frá aldamótum. Þetta er mjög sársaukafullt fyrir vinnandi fólk. Laun þeirra halda ekki einu sinni í við verðlagið en lækkun raunlauna er engu að síður nauðsynlegur undanfari kröftugrar endurreisnar í kjölfar efnahagssamdráttar. Lækkun raunlauna gerir vinnuafl hlutfallslega ódýrara, eykur samkeppnishæfni, dregur úr atvinnuleysi og svo fá starfandi á vinnumarkaði þessa endurheimt hraðar en ella í gegnum þennan efnahagsbata.

Hér er hins vegar verið að lögfesta það að ákveðnir hópar í samfélaginu okkar spili eftir öðrum leikreglum; þurfa að reiða sig á skatttekjur þeirra sem eru starfandi en fá tryggða afkomu. Og þá kemur spurningin sem mér finnst að meiri hlutinn hljóti að svara: Hvers vegna er nauðsynlegt að hafa þetta gólf og hvað getur þessi staða lifað lengi? Ef við gengjum í gegnum efnahagssamdrátt, kannski kröftugan eða yfir nokkur ár, er tilgangur reglunnar sá að á endanum leiði hún til þess að þessar bætur almannatryggingakerfisins verði einfaldlega hærri en launin? Það viljum við ekki, allra síst á tímum eins og þessum þegar atvinnuþátttaka er í kringum 80%, þ.e. 20% fólks á vinnualdri eru ekki starfandi. Reglan sem hér er verið að lögfesta mælir einmitt fyrir um þetta.

Lögfestingin á þessu frumvarpi, þar sem verið er að setja launaþróun og launavísitöluna inni í almannatryggingakerfinu með beinum hætti með þessari sjálfstýringu, sem ekki bara ég kalla sjálfstýringu heldur fjármálaráðuneytið sjálft, mun stuðla að meiri verðbólgu og hærra vaxtastigi. Ég fæ ekki séð hvernig þetta frumvarp getur talað saman við orðræðu hæstv. forsætisráðherra í gær þar sem hún talaði um að við þyrftum að ná fram þessum úrbótum á vinnumarkaði, draga úr verðtryggingu í íslensku samfélagi; það er lögð áhersla á þetta. Svo bara daginn eftir er hér til umræðu þetta mál sem, eins og hefur komið fram, var upphaflega borið fram sem þingmannamál og ber þess skýr merki enda vantar allar greiningar og sviðsmyndir af því hvernig þetta getur þróast. Það var raunar óskað eftir því í störfum nefndarinnar en það fékkst ekki. Það hefur verið áætlað að kostnaðurinn við frumvarpið verði 10–12 milljarðar þann tíma sem fjármálaáætlunin gildir en það veit það enginn fyrir víst. Það sem meira er er að við vitum ekki hver kostnaðurinn verður eftir 10 ár, eða eftir 15 eða 20 ár, en mekanisminn í frumvarpinu er þannig að hann mun hækka. Það er ómögulegt að segja hvað hann mun hækka mikið en hann hefur þessi þríþættu áhrif; það er annars vegar sjálfstýring en hann getur líka haft áhrif á atvinnuþátttöku og það er það sem við gjöldum varhuga við.

Við í Sjálfstæðisflokknum höfum talað gegn þessu máli vegna þess að núgildandi lög og stefna stjórnvalda í þessum málaflokki hafa nú reynst ágæt. Þessi vísitölutenging við ósjálfbæra þróun launavísitölu er glapræði. Þarna er verið að taka sjálfstætt efnahagslegt vandamál á Íslandi sem við höfum verið að reyna að vinna gegn á undanförnum árum og áratugum með misgóðum árangri og beintengja við 20% fjárlaga. Við vörum við því.